Telja Eik, Reiti og Regin öll eiga innistæðu fyrir verðhækkunum

eik----kauphoell2.jpg
Auglýsing

Sér­fræð­ingar Capacent telja virði fast­eigna­fé­lag­anna þriggja í Kaup­höll­inni, það eru Eik, Reitir og Reg­inn, vera á bil­inu 12 til 24 pró­sentum hærra en gengi hluta­bréfa félag­anna gefur til kynna í dag. Virði Eikar er metið 19 pró­sent hærra en gengi bréfa félags­ins er í dag, hluta­bréfa­gengi Reita er metið 12 pró­sent yfir verði hluta­bréfa félags­ins í dag og virði Reg­ins er metið 24 pró­sent yfir mark­aðs­gengi.

Fjöl­miðlar hafa greint frá virð­is­mati Capacent á fast­eigna­fé­lög­unum í dag. Í grein­ing­unni er það meðal ann­ars gagn­rýnt hvernig staðið var að hluta­fjár­út­boði Eikar og Reita.

Í grein­ing­unni er Eik sagt „ungt og efni­legt félag“ í örum vexti. Verð­mat­ið, um 19 pró­sentum hærra en gengi bréf­anna í dag, gerir ráð fyrir að stjórn­endum félags­ins tak­ist að bæta nýt­ing­ar­hlut­fall fast­eigna í útleigu. „Á móti kemur að við setjum frekar hátt sér­tækt álag á veg­inn fjár­magns­kostnað félags­ins. Gangi rekstr­ar­á­ætlun eftir sem var birt í skrán­ing­ar­lýs­ingu og þegar meiri reynsla verður komin á rekstur félags­ins mun það leiða til hærra verð­mats. Sömu­leiðis mun verð­matið lækka ef þessu verður öfugt far­ið,“ segir í grein­ingu Capacent. Gengi bréfa á mark­aði við lok við­skipta­dags 18. júní var 6,3 krónur á hlut en gengi sam­kvæmt verð­mati Capacent er 7,5 krón­ur.

Auglýsing

„Gengi Reita skv. verð­mati er 71,8 sem er 12% yfir gengi á mark­aði. Fá vaxta­tæki­færi virð­ast vera á mark­aði með atvinn­u-hús­næði. Tölu­vert fram­boð virð­ist vera af skrif­stofu­hús­næði og virð­ist helst vera eft­ir­spurn eftir hús­næði fyrir hótel og veit­inga­staði. Fast­eigna­fé­lög eru í eðli sínu ekki mikil vaxt­ar­fé­lög og treysta fremur á stöðugan rekstur og greiðslu arðs,“ segir um Reiti fast­eigna­fé­lag.

„Reitir gátu ekki greitt arð vegna rekstr­ar­árs­ins 2014 vegna íþyngj­andi skil­yrða í fjár­mögn­un. Eig­in­fjár­hlut­fall Reita er hátt eða um 39% og veg­inn fjár­magns­kostn­aður félags­ins er hærri en ella vegna mik­ils vægis eigin fjár í fjár­mögn­un. Lokið hefur verið við end­ur­fjár­mögnun félags­ins og eru íþyngj­andi skil­yrði í fjár­mögnun ekki lengur til stað­ar. Ef dregið væri úr vægi eigin fjár í fjár­mögnun mun veg­inn fjár­magns­kostn­aður lækka og verð­mats­gengi hækk­a.“



Að mati Capacent er stað­setn­ing eigna lyk­ill­inn að verð­mati og fram­tíð­ar­vexti Reg­ins. „Gengi Reg­ins skv. verð­mati er 17,8 sem er 24% yfir gengi á mark­aði. Rétt er að hafa í huga að óvissa er varð­andi rekstur Fastengis sem Reg­inn keypti nýver­ið. Án Fastengis væri gengi félags­ins 16,3 og vel yfir gengi á mark­aði. Fjár­festar geta því keypt upp að geng­inu 16,3 og beðið þangað til að árangur fjár­fest­ingar félags­ins í Fastengi kemur betur í ljós. Við fyrstu sýn virð­ast kaupin hafa verið góð og styrkja enn frekar sjóð­streymi félags­ins.

Út frá verð­mati og jákvæðum áhrifum af kaupum á Fastengi kemur slakt gengi félags­ins á hluta­bréfa­mark­aði að und­an­förnu á óvart. Ekki eru allar eignir félags­ins stað­settar í „Smartlandi“ en sjóð­streymið er sterkt og mat fjár­mála­ráð­gjafar Capacent að hag­stæð­asta verðið á meðal fast­eigna­fé­lag­anna þriggja sé nú í Reg­inn.

Lyk­ill­inn að verð­mati og fram­tíð­ar­vexti Reg­ins liggur í stað­setn­ingu eigna. Félagið mætti bæta upp­lýs­inga­gjöf sína veru­lega t.d. um teg­und­ir, stærð, nýt­ing­ar­hlut­föll og fjölda ein­stakra eigna og leigu­taka fyrir ein­stök svæð­i,“ segir í grein­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None