Telja „órökréttar og illa undirbúnar“ aðgerðir boðaðar til að bjarga fjármálum ríkisins

Bílgreinasambandið og SVÞ eru hvassyrt í garð stjórnvalda í umsögn sinni um fjárlagafrumvarpið og telja nýjar álögur á rafbíla, sem skilja eiga 4,9 milljörðum í ríkissjóð, til þess fallnar að veikja efnahagslega hvata til orkuskipta.

Rafmagnsbílar
Auglýsing

Bíl­greina­sam­bandið og Sam­tök versl­unar og þjón­ustu telja að þær breyt­ingar sem lagðar eru til í fjár­lögum næsta árs varð­andi skatt­lagn­ingu öku­tækja séu „ekki aðeins vara­samar heldur einnig órök­réttar og illa und­ir­bún­ar“.

Í umsögn hags­muna­sam­tak­anna tveggja segir að myndin sem blasi við sé að „um þessar mundir liggi engin lang­tíma­á­ætlun eða stefnu­mótun til grund­vallar til­lög­un­um“, sem fyrir vikið birt­ist sem „eins­konar fjár­hags­legar björg­un­ar­að­gerðir vegna fjár­mála rík­is­ins árið 2023“.

Næstum fimm millj­arða við­bót­ar­tekjur af bílum

Eins og Kjarn­inn fjall­aði um eftir að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti fjár­laga­frum­varpið í sept­em­ber birt­ust í því fyrstu skrefin í að breyta gjald­töku á bíla, en breyt­ingar sem boð­aðar eru á vöru­gjöldum og bif­reiða­gjöldum á næsta ári eiga að skila 4,9 millj­örðum króna í við­bót­ar­tekjur fyrir rík­is­sjóð ef áætl­anir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins stemma.

Auglýsing

Þetta líst Bíl­greina­sam­band­inu og SVÞ ekk­ert á. Segja þau að boðuð lág­marks­vöru­gjöld á fólks­bif­reiðar muni draga úr verð­mun á spar­neytnum öku­tækjum og eyðslu­frekum og „veikja mjög“ þá efna­hags­legu hvata til orku­skipta sem eru í núgild­andi kerfi vöru­gjalds á öku­tæki.

Hið sama muni fyr­ir­hugað lág­marks­bif­reiða­gjald gera og það verði þannig fýsi­legra að bæði kaupa og reka eyðslu­frekar bif­reið­ar.

Veru­leg hækkun á verði raf­bíla fyr­ir­sjá­an­leg

Í umsögn hags­muna­sam­tak­anna er bent á að íviln­anir og efna­hags­legir hvatar skatt­kerf­is­ins til orku­skipta falli að miklu leyti úr gildi eða missi virkni undir lok þessa árs og útlit sé fyrir að 20 þús­und raf­bíla kvót­inn, sem skatta­af­sláttur er veittur af, verði upp­ur­inn um mitt næsta ár.

Sam­spil þessa við boðuð lág­marks­vöru­gjöld segja sam­tökin að muni hafa veru­leg áhrif til hækk­unar útsölu­verðs raf­magns­bif­reiða og birta sam­tökin í umsögn sinni mynd af nokkrum bílum framan við bíla­um­boð og eigin útreikn­ingum af því hvað útsölu­verð þess­ara bíla myndi hækka mik­ið, við lok skattaí­viln­ana og álagn­ingu 5 pró­sent vöru­gjalda.

„Verð­munur mun aukast umtals­vert þegar litið er til útsölu­verðs bens­ín- og dísil­bif­reiða ann­ars vegar og raf­magns­bif­reiða hins veg­ar. Virkni efna­hags­legra hvata til orku­skipta munu drag­ast harka­lega sam­an. Þar með eru líkur á að eft­ir­spurn kaup­enda fær­ist í auknum mæli að bif­reiðum sem ganga, að hluta eða heild, fyrir jarð­efna­elds­neyt­i,“ segir í umsögn sam­tak­anna.

Þau birta svo eigin spá um sölu bíla fram til árs­ins 2031, þar sem gert er ráð fyrir að 60 þús­und raf­bílar selj­ist á árunum 2022-2030 sem myndi þýða að raf­bílar yrðu 75 þús­und tals­ins í bíla­flota lands­manna við lok árs 2030. Það er um fjórð­ungur þess fjölda bíla sem sam­tökin gera ráð fyrir að verði í umferð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent