Það kostar hálfan milljarð að auka viðbúnað lögreglu vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins

Ísland tók við formennsku í Evrópuráðinu í nóvember. Í maí á næsta ári verður haldinn fjórði leiðtogafundur þess í tæplega 74 ára sögu þess haldinn á Íslandi. Búist er við tugum þjóðarleiðtoga til landsins.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á vettvangi Evrópuráðsins fyrr á þessu ári. Ísland tók við formennsku í ráðinu í nóvember af Írum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á vettvangi Evrópuráðsins fyrr á þessu ári. Ísland tók við formennsku í ráðinu í nóvember af Írum.
Auglýsing

Alls 500 millj­ónum króna verður veitt úr rík­is­sjóði til að auka við­búnað lög­reglu í tengslum við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins sem hald­inn verður í Reykja­vík 16.-17 maí árið 2023. Þetta kemur fram í nýju meiri­hluta­á­liti fjár­laga­nefnd­ar, sem stjórn­ar­þing­menn skrifa und­ir, og birt var í gær­kvöldi.

Gert er ráð fyrir því að tugir þjóð­ar­leið­toga, ráð­herra og emb­ætt­is­manna frá flestum ríkjum Evr­ópu muni sækja fund­inn sem verður fjórði leið­toga­fundur í sögu Evr­ópu­ráðs­ins. Hann verður auk þess sá umfangs­mesti sem nokkru sinni hefur verið hald­inn.

Aðeins þrír leið­toga­fundir Evr­ópu­ráðs­ins hafa verið haldnir í tæp­lega 74 ára sögu ráðs­ins. Fund­ur­inn verður sá umfangs­mesti sinnar teg­undar sem Ísland hefur nokkurn tím­ann hald­ið.

Evr­ópu­ráðið var stofnað 5. maí 1949. Sam­kvæmt stofn­skrá þess er því ætlað að efla sam­vinnu aðild­ar­ríkj­anna með það að mark­miði að standa vörð um mann­rétt­indi, styrkja lýð­ræð­is­lega stjórn­ar­hætti, efla mann­leg gildi og almenn lífs­gæði Evr­ópu­búa. Rík áhersla hefur verið lögð á að auka skiln­ing og sam­kennd meðal íbúa álf­unnar á grund­velli sam­eig­in­legrar arf­leifð­ar.

Evr­ópu­ráðið hefur höf­uð­stöðvar í Strass­borg og teng­ist ekki Evr­ópu­sam­band­inu, þótt öll aðild­ar­ríki þess séu einnig í ráð­inu. Alls eru aðild­ar­ríkin 46 tals­ins og helstu stofn­anir þess eru þing og ráð­herra­nefnd Evr­ópu­ráðs­ins.

Auglýsing
Ísland opn­aði nýja fasta­nefnd í Evr­ópu­ráð­inu þann 1. sept­em­ber 2020 eftir að engin slík hafði verið til staðar frá árinu 2009. Ísland tók svo við for­mennsku í Evr­ópu­ráð­inu í nóv­em­ber 2022 og í aðdrag­anda þess tók fasta­full­trúi Íslands sæti í yfir­stjórn Evr­ópu­ráðs­ins þegar á árinu 2021 og gegndi for­mennsku á mann­rétt­inda­fundum ráð­herra­nefndar Evr­ópu­ráðs­ins hálfu ári áður en Ísland tók við for­mennsk­unn­i. 

Ísland hefur tvisvar áður gegnt for­mennsku í Evr­ópu­ráð­inu, árin 1955 og 1999.

Sjálf­sagt að svara kalli um að leið­togar komi saman

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra til­kynntu um það 7. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að Evr­ópu­ráðið hefði tekið ákvörðun um að efna til leið­toga­fundar undir for­mennsku Íslands í ráð­inu. Þær tvær verða gest­gjafar fund­ar­ins.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins vegna þessa sagði að aðild­ar­ríki Evr­ópu­ráðs­ins hefðu sam­mælst um að ríkt til­efni væri til að leið­togar ríkj­anna 46 kæmu saman á þeim við­sjár­verðu tímum sem nú væru upp­i. 

Þar var haft eftir Katrínu að Evr­ópu­ráðið sner­ist um grunn­gildi sam­fé­laga okk­ar; lýð­ræði, mann­rétt­indi og rétt­ar­rík­ið. „Inn­rásin í Úkra­ínu, heims­far­aldur og efna­hags­þreng­ingar skapa áskor­anir fyrir þessi grunn­gildi og því hefur aldrei verið mik­il­væg­ara að leið­togar Evr­ópu­þjóða end­ur­nýi heitin og séu sam­taka um að standa vörð um þessi gildi. Ísland mun taka for­mennsku­hlut­verk sitt alvar­lega enda tök­umst við á við þetta verk­efni á krefj­andi tím­um.“

Þór­dís Kol­brún sagði á sama stað að Ísland myndi að sjálf­sögðu svara því kalli Evr­ópu­ríkja um að leið­tog­arnir komi sam­an. „Ljóst er að sú staða sem upp er komin í álf­unni í kjöl­far inn­rásar Rúss­lands í Úkra­ínu verður í brennid­epli á leið­toga­fund­in­um. Aðstæður til að halda slíkan fund gætu því varla verið meira knýj­andi og augu umheims­ins munu án efa bein­ast að Íslandi þessa daga á vori kom­anda."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent