Það sem þú hefur lesið um morðið á bin Laden er mjög líklega lygi

h_02781439-1.jpg
Auglýsing

Skömmu eftir að Osama bin Laden féll fyrir byssu­kúlum banda­rískra sér­sveit­ar­manna í Pakistan í maí­mán­uði árið 2011, birt­ust fréttir af hetju­dáð her­mann­anna og nákvæm lýs­ing á morð­inu á eft­ir­lýstasta manni jarðar fylgdi skjótt í kjöl­far­ið. Sam­kvæmt nýrri og athygl­is­verðri grein rann­sókn­ar­blaða­manns­ins Seymour M. Hersh, sem birt­ist í The London Review of Books, eru allar líkur á að morðið hafi átt sér stað öðru­vísi en banda­rísk stjórn­völd hafa látið í veðri vaka.

Í stofu­fang­elsi í Pakistan



Sam­kvæmt grein Hersh var Osama bin Laden í haldi pakist­anska hers­ins, en fór ekki huldu höfði í Pakistan, eins og haldið hefur verið fram. Þá var Bin Laden vistaður í stofu­fang­elsi, og pakist­anski her­inn vissi ekki bara hvar hann var heldur þáði greiðslur frá Sádi-­Ar­ab­íu ­vegna uppi­halds­ ­leiðoga al-Kaída hryðju­verka­sam­tak­anna.

Hersh full­yrðir í grein sinni að það sé upp­spuni banda­rískra stjórn­valda að ­upp­lýs­ing­arnar sem leiddu til aftöku bin Laden hafi náðst fram með hörðum yfir­heyrslum og pynt­ingum með vatns­bretti, eins og greint er frá í kvik­mynd­inni Zero Dark Thir­ty. Hið rétta sé að maður hafi gengið inn af göt­unni og sagt banda­rískum emb­ætt­is­mönnum í Pakistan hvar bin Laden væri að finna, og fékk í sinn hlut 25 millj­óna dala fund­ar­laun.

Til­bú­inn hasar



Í kjöl­far morðs­ins á bin Laden komust sögur af því hvernig banda­rískir sér­sveit­ar­menn skutu sér leið inn í „fylgsni“ hans í hámæli. Bin Laden átti meira segja að hafa skotið að banda­rísku her­mönn­un­um, slíkur var hasar­inn. Sam­kvæmt grein Hersh er þetta ekki sann­leik­anum sam­kvæmt, sér­sveit­ar­mönn­unum beið engin mót­staða, heldur lædd­ust þeir hljóð­lega upp í svefn­her­bergi bin Laden og tóku af lífi þar sem hann dvaldi óvopn­að­ur.

Þá telur Hersh afar ólík­legt að útför bin Laden hafi farið fram út á sjó, líkt og haldið hefur verið fram. Lík­legra sé að líki hans hafi verið kastað út úr þyrl­unni sem flutti banda­rísku sér­sveit­ar­menn­ina aftur til Afganistan, yfir fjall­lendi.

Auglýsing

Fyrri greinar byggðar á upp­lýs­ingum frá hernum og Hvíta hús­inu



Seymour M. Hersh, sem hlaut Pulitzer verð­launin fyrir umfjöllun sína um My Lai fjöldamorðin í Víetnam, hefur skrifað um banda­ríska her­inn í áraraðir og birt greinar sínar reglu­lega í The New Yor­ker frá árinu 1993.

Í tíma­rit­inu birt­ist grein árið 2011 undir fyr­ir­sögn­inni Gett­ing Bin Laden, eftir blaða­mann­inn Nicholas Schmid­le, sem er sonur yfir­manns hjá banda­ríska hern­um. Í um­ræddri grein var farið nákvæm­lega yfir morðið á Bin Laden, og meira segja haft eftir sér­sveit­ar­mann­inum sem skaut Bin Laden hvað hann sagði þegar hryðju­verka­mað­ur­inn féll í val­inn. Síðar kom í ljós að Schmidle hafði aldrei talað við neinn sér­sveit­ar­mann sem tók þátt í aðgerð­inni, heldur byggt grein­ina sína ein­vörð­ungu á upp­lýs­ingum frá hernum og innan úr Hvíta hús­inu.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None