„Það skiptir máli fyrir budduna hvar þú býrð“

Þingmaður Viðreisnar telur að gera verði þá kröfu til ríkisvaldsins að það sýni samfélagslega ábyrgð og gott fordæmi og lækki lóðarleigu. Lóðarleiga í Reykjanesbæ sé til að mynda rúmlega 600 prósent hærri en lóðarleigan í Kópavogi.

Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar.
Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

„Það skiptir máli fyrir budd­una hvar þú býrð.“ Þannig hóf Guð­brandur Ein­ars­son þing­maður Við­reisnar ræðu sína undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hann sagði að sam­an­burður Byggða­stofn­unar á fast­eigna­mati og fast­eigna­gjöldum árið 2020 hefði leitt í ljós að lóð­ar­leiga í Reykja­nesbæ væri áber­andi hæst miðað við við­mið­un­ar­svæð­in, eða 126.000 krónur á ári, sem væri 38,7 pró­sent hærra en í Grund­ar­firði þar sem næst­hæsta lóð­ar­leigan væri 91.000 krónur á ári.

„Álagn­ingin að með­al­tali í Reykja­nesbæ er 1,75 pró­sent af lóð­ar­mati á móti 1,9 í Grund­ar­firði. Lægst er lóð­ar­leigan í Kópa­vogi miðað við krónu­tölu, tæpar 17.000 krónur á ári, og því er lóð­ar­leiga í Reykja­nesbæ rúm­lega 600 pró­sent hærri en lóð­ar­leigan í Kópa­vog­i,“ sagði hann.

Auglýsing

Benti þing­mað­ur­inn á að ríkið væri stór land­eig­andi í Reykja­nesbæ og rukk­aði 2 pró­sent lóð­ar­leigu á meðan sveit­ar­fé­lagið veitti 25 pró­sent afslátt af lóð­ar­leigu af því landi sem sveit­ar­fé­lagið á.

„Þeir sem borga lóð­ar­leigu til Reykja­nes­bæjar greiða því 1,5 pró­sent lóð­ar­leigu. Land­eig­endur aðrir en ríkið hafa ekki ljáð máls á því að lækka leigu á landi á meðan ríkið er ekki til við­tals um lækkun leigu. Stjórn­endur Reykja­nes­bæjar reyndu á sínum tíma að fá ríkið til þess að lækka lóð­ar­leig­una, en þau svör sem emb­ætt­is­menn veittu voru á þann veg að íbúðir á Ásbrú­ar­svæð­inu hafi verið seldar svo ódýrt og þess vegna ætti að ná inn tekjum í gegnum lóð­ar­leigu í stað­inn.

Það skýtur skökku við að þeir sem hafa keypt á Ásbrú­ar­svæð­inu sitji uppi með okur­lóð­ar­leigu vegna þess að ríkið seldi eignir sem það fékk næstum gef­ins á útsölu­prís. Það verður að gera þá kröfu til rík­is­valds­ins að það sýni sam­fé­lags­lega ábyrgð og gott for­dæmi og lækki lóð­ar­leigu. Það getur ekki gengið að íbúar í Reykja­nesbæ greiði 600 pró­sent hærri lóð­ar­leigu en íbúar í Kópa­vog­i,“ sagði hann að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent