Rúm 72 prósent væntra kjósenda VG jákvæð í garð aðildar Íslands að NATO

Jákvæðni í garð aðildar að Atlantshafsbandalaginu er nú minni hjá kjósendahópum Samfylkingar, Pírata, Flokks fólksins og Sósíalistaflokksins en á meðal væntra kjósenda VG, samkvæmt nýrri könnun frá Maskínu.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna.
Auglýsing

Sam­kvæmt könnun sem Mask­ína vann fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið undir lok maí­mán­aðar eru tæp­lega 71 pró­sent land­manna jákvæð í garð aðildar Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) og hefur jákvæðnin í garð aðildar auk­ist mikið frá fyrri sam­bæri­legum mæl­ing­um.

Athygli vek­ur, er nið­ur­stöð­urnar eru brotnar niður eftir stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka, að jákvæðni í garð aðildar að banda­lag­inu var umfram lands­með­al­tal hjá þeim hópi svar­enda sem sagð­ist ætla að kjósa Vinstri græn. Flokk­ur­inn er sá eini á þingi sem hefur það bein­línis á stefnu­skrá sinni að Ísland ætti að ganga úr NATO.

Það virð­ist þó litlu skipta um þessar mund­ir, en 72,3 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa flokk­inn eru jákvæð í garð aðildar Íslands að banda­lag­inu. Ein­ungis 6,4 pró­sent þeirra sem sögð­ust ætla sér að kjósa Vinstri græn sögð­ust nei­kvæð gagn­vart aðild Íslands að banda­lag­inu.

Þetta er gjör­breytt staða frá fyrri mæl­ing­um. Í könnun sem Mask­ína fram­kvæmdi í mars 2020 voru 35,4 pró­sent væntra kjós­enda Vinstri grænna jákvæð í garð NATO-að­ildar Íslands og 30,1 pró­sent þeirra sögð­ust nei­kvæð. Í mæl­ingu Mask­ínu í maí 2021 sögð­ust 38,4 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna svo jákvæð í garð aðildar og 24,7 pró­sent nei­kvæð.

Kjós­endur Sós­í­alista­flokks nei­kvæð­astir í garð aðildar

Jákvæðni í garð NATO meðal væntra kjós­enda Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Flokks fólks­ins var lægri en í væntum kjós­enda­hópi Vinstri grænna, og mælist á bil­inu 63-65 pró­sent í könnun Mask­ínu. Þau sem sögð­ust ætla að kjósa Sós­í­alista­flokk­inn voru síst jákvæð í garð aðildar – ein­ungis 48 pró­sent væntra kjós­enda flokks­ins sögð­ust jákvæð gagn­vart aðild­inni að banda­lag­inu.

Auglýsing

Nei­kvæðni í garð aðildar Íslands að NATO mælist mest hjá væntum kjós­endum Sós­í­alista­flokks, en næst mest hjá kjós­endum Pírata og þá Sam­fylk­ing­ar, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins.

Kjós­endur Við­reisnar eru allra jákvæð­astir í garð NATO-að­ild­ar, eða 95,5 pró­sent vænts kjós­enda­hóps flokks­ins. Næst komu kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks, en um 92 pró­sent þeirra eru jákvæðir í garð aðildar og um 80 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks og Mið­flokks.

Könnun Mask­ínu fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið var fram­kvæmd dag­ana 19.-27. maí, en hún var lögð fyrir Þjóð­gátt Mask­ínu, sem er þjóð­hópur fólks sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóð­skrá. Svar­endur voru 957 tals­ins. Spurt var út í við­horf almenn­ings til ýmissa þátta í utan­rík­is­þjón­ustu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent