Þáttur Björns Inga áfram á Stöð 2 þrátt fyrir þátt Heiðu Kristínar

hei.a.12.jpg
Auglýsing

Nýr þjóð­mála­þáttur í umsjón Heiðu Krist­ínar Helga­dótt­ur, sem mun hefja göngu sína á Stöð 2 í febr­úar og heyrir beint undir frétta­stofu 365 miðla, mun ekki hafa nein áhrif á þjóð­mála­um­ræðu­þátt­inn Eyj­una sem er á dag­skrá stöðv­ar­innar á sunnu­dög­um. Þetta stað­festir Björn Ingi Hrafns­son, umsjón­ar­maður Eyj­unn­ar.

Hann segir að í gildi sé lang­tíma­samn­ingur um þátt­inn og að algjört sjálf­stæði ríki um efn­is­tök. Nýr þáttur á vegum frétta­stofu 365 miðla breyti þar engu um. Björn Ingi segir það hins vegar vera fagn­að­ar­efni að fleiri og fleir átti sig á því að það sé líf eftir póli­tík og því sé mjög flott að fá Heiðu Krist­ínu með þessum hætti inn í fjöl­miðla.

Hætti í stjórn­málum



Kjarn­inn greindi frá því í gær­morgun að Heiða Krist­ín, sem nýverið hætti sem stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, hafi verið ráðin til 365 miðla. Þar mun hún stýra nýjum viku­legum þætti um þjóð­mál á Stöð 2. Í sam­tali við Kjarn­ann sagð­ist Heiða Kristín mjög spennt og til í þetta nýja verk­efni.

Í des­em­ber til­kynnti Heiða Kristín að hún myndi hætta sem stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar um síð­ustu ára­mót og hætta afskiptum af stjórn­mál­um. Hún kom að stofnun Besta flokks­ins fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2010 og síðar Bjartrar fram­tíð­ar. Hún var um tíma aðstoð­ar­maður Jóns Gnarr borg­ar­stjóra, fram­kvæmda­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Besta flokks­ins, vara­for­maður Besta flokks­ins, stjórn­ar­for­maður og fram­kvæmda­stjóri Bjartrar fram­tíð­ar. Hún bauð sig fram fyrir hönd Bjartrar fram­tíðar í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum en náði ekki kjöri. Hún er vara­þing­maður flokks­ins í dag.

Auglýsing

Sam­starfs­samn­ingur milli fjöl­miðla



Björn Ingi Hrafnsson stýrir Eyjunni, sem er á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudögum. Björn Ingi Hrafns­son stýrir Eyj­unni, sem er á dag­skrá Stöðvar 2 á sunnu­dög­um.

Í febr­úar 2014 var til­kynnt að vef­síðan Eyj­an,­sem er í eigu Pressunn­ar, hefði gert sam­starfs­samn­ing við 365 miðla um að sjá um viku­legan sjón­varps­þátt undir Eyju-heit­inu. Honum yrði stýrt af Birni Inga Hrafns­syni, aðal­eig­anda Pressunn­ar. Auk þess var sam­hliða til­kynnt um útgáfu mán­aða­legs blaðs Eyj­unnar sem átti að fylgja frítt með Frétta­blað­in­u. Hætt hefur verið við þá útgáfu.

Sjón­varps­þátt­ur­inn Eyjan hóf svo göngu sína í maí.

Björn Ingi Hrafns­son, sem stýrir þætt­in­um, er orð­inn einn umsvifa­mesti fjöl­miðla­maður lands­ins. Hann er stærsti eig­andi Pressunn­ar, sem á vef­ina Eyj­una, Press­una og Bleikt, og fer fyrir hópi sem keytpi um 70 pró­sent hlut í útgáfu­fé­lagi DV, sem á og rekur DV og DV.is, undir lok síð­asta árs. Hann er nú útgef­andi og stjórn­ar­for­maður DV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None