Þegar Guðni Ágústsson skrifar blaðagrein eykst fylgi Pírata

Guðni-Ágústsson.jpg
Auglýsing

Guðni Ágústs­son, fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, minnir reglu­lega á sig með skrifum í Morg­un­blaðið þótt hann sé form­lega hættur í stjórn­mál­um. Í ágúst skrif­aði hann grein þar sem hann sagði Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son og Bjarna Bene­dikts­son vera langt komna með að koma Íslandi í fremstu röð allra þjóða í Evr­ópu með stjórn­visku sinni. Guðni sagð­ist ekki hafa neina trú á öðru en að hinn almenni kjós­andi sé sam­þykkur þeirra verkum og finni breyt­ingu til batn­aðar í vesk­inu sínu. Í grein­inni reyndi Guðni einnig að útskýra mikið fylgi Pírata. Hann sagði stöðu flokks­ins, sem hefur mælst langstærsti flokkur lands­ins nán­ast allt þetta ár, vera vegna þess að „ein­hver póli­tískur skringi­leiki gerir það að verkum að þriðji hver kjós­andi hótar að kjósa Pírata næst. Hvers vegna, það veit eng­inn.“

Guðni blés rykið af rit­vél­inni aftur í lið­inni viku og reyndi á ný, með hæðni og dass af fyr­ir­litn­ingu, að greina hið póli­tíska lands­lag. Greinin birt­ist vit­an­lega í Morg­un­blað­inu að venju og í henni sagði hann Pírata oft minna „á okkar mesta stjórn­mála­mann, Ragnar Reykás. Þeir geta nefni­lega skipt um skoðun og skammað sjálfa sig fyrir vit­leys­una – sem er svo ein­lægt og ynd­is­leg­t“. Fyrir þá sem ekki þekkja til Ragn­ars Reykás þá var hann per­sóna í þáttum Spaug­stof­unnar sem skipti ítrekað um skoðun á öllu milli him­ins og jarðar á auga­bragði.

Hann sagði Pírata, sem mæl­ast með 36 pró­sent fylgi, vera á „furðu­flugi í vin­sæld­um“ og sagði einu flokk­anna sem séu með gras­rót og bak­land vera Sjálf­stæð­is­flokk (sem mælist með 21,6 pró­sent fylgi) og Fram­sókn­ar­flokk ( sem mælist með 11,1 pró­sent fylg­i).

Auglýsing

Guðni er ekki eini íhalds­mað­ur­inn, með miklar rætur í sér­hags­munapóli­tík fyrri tíma, sem hefur lagt til atlögu gegn Pírötum á opin­berum vett­vangi og reynt að gera lítið úr þeirri bylgju sem safn­ast hefur upp að baki þeirra. Þeir eiga það hins vegar allir sam­eig­in­legt að skilja ekki þá breyt­ingu sem orðið hefur á sam­fé­lagi manna með upp­lýs­ing­ar­bylt­ingu inter­nets­ins og tækni­bylt­ing­unni sem fylgdi í kjöl­far­ið. Krafa fólks um að hafa rík­ari aðkomu að ákvörð­un­ar­töku um stærstu málin sem snerta líf þess end­ur­spegl­ast í því mikla fylgi sem Píratar mæl­ast með um þessar mund­ir. Það er ekki merki um að kjós­endur skynji ekki stjórn­vísi ráð­andi afla heldur að þeir séu í auknum mæli að hafna henni. Og því oftar sem Guðni Ágústs­son og hans líkir tala niður til þjóð­ar­innar vegna þessa, því fleiri virð­ast bæt­ast í hóp þeirra sem vilja grund­vall­ar­breyt­ingu á íslenskum stjórn­mál­um, og íslensku sam­fé­lagi.

Píratar von­ast því örugg­lega eftir því að Guðni hamri sem flestar yfir­læt­is­fullar háðs­greinar og birti í Mogg­an­um, því í hvert sinn sem hann gerir það virð­ist vænt­an­legum kjós­endum þeirra fjölga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None