Þórir Hákonarson ráðinn íþróttastjóri Þróttar - Var framkvæmdastjóri KSÍ í átta ár

--orir.jpg
Auglýsing

Þórir Hákon­ars­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ), hefur verið ráð­inn í starf íþrótta­stjóra Þrótt­ar. Þórir hætti sem fram­kvæmda­stjóri KSÍ í febr­úar síð­ast­liðnum eftir að hafa gegnt starf­inu í átta ár, eða frá vor­dögum 2007.  Þórir til­kynnti um upp­sögn sína í pistli á heima­síðu sam­bands­ins sem birt­ist 19. febr­ú­ar. Á meðan að Þórir gengdi starfi fram­kvæmda­stjóra KSÍ upp­lifðu bæði karla- og kvenna­lands­lið Íslands í knatt­spyrnu meiri upp­gang en þau höfðu nokkru sinni gert áður. Kvenna­lands­liðið komst á loka­mót og karla­liðið komst nálægt því.

Greint er frá ráðn­ingu Þóris sem íþrótta­stjóra á heima­síðu Þrótt­ar. Þar segir að hann búi "yfir mik­illi reynslu af störfum í íþrótta­hreyf­ing­unni, og því ánægju­efni að fá jafn öfl­ug­ann mann og Þóri til starfa."

Klara eina konan til að vera fram­kvæmda­stjóri KSÍ



Klara Bjart­marz tók tíma­bundið við starfi Þóris hjá KSÍ þegar hann hætti. Hún var síðan ráðin fram­kvæmda­stjóri til fram­búðar í ágúst síð­ast­liðn­um. Starfið var ekki aug­lýst en ein­hugur var innan stjórnar sam­bands­ins um að ráða Klöru í það.

Hún hefur hefur starfað fyrir KSÍ síðan í jan­úar 1994, lengst af við móta­mál og lands­lið kvenna.  Þá gegndi hún jafn­framt starfi skrif­stofu­stjóra KSÍ um ára­bil.  Að auki hefur Klara starfað fyrir UEFA sem eft­ir­lits­maður á alþjóð­legum leikj­um.

Auglýsing

Klara er fyrsta konan sem gegnir stöðu fram­kvæmda­stjóra KSÍ frá því að fyrsti laun­aði fram­kvæmda­stjór­inn var ráð­inn árið 1967. Áður en hún tók við starf­inu höfðu 17 karl­menn gengt því. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, gerði það lengst allra, frá 1997 til 2007, eða þar til hann var kjör­inn for­maður sam­bands­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None