Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður Flokks fólksins segir að það að bryðja 15 til 20 töflur á dag á biðlista eftir aðgerðum svo mánuðum eða árum skiptir sé ofbeldi af verstu gerð.
Þetta kom fram í máli hans undir liðnum störf þingsins á Alþingi síðastliðinn miðvikudag.
Þingmaðurinn gerði að umtalsefni dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem hann sýknaði Sjúkratryggingar og ríkið af kröfu konu sem krafðist þess að fá greitt 1.200 þúsund krónur með dráttarvöxtum auk málskostnaðar fyrir það að fara í aðgerð hjá Klíníkinni í Ármúla.
„Hún má fara í þrisvar sinnum dýrari aðgerð erlendis en komst ekki vegna COVID-19. Lögmaður hennar segir þetta brot á mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar. Í Morgunblaðinu í morgun kemur einnig fram að Sjúkratryggingar samþykktu að konan mætti leita sér meðferðar innan EES-svæðisins en ekki hjá Klíníkinni í Ármúla vegna samningsleysis um greiðsluþátttöku í meðferð hjá þeim.
Þá er bent á að íbúar annarra landa Evrópska efnahagssvæðisins virðast njóta betri réttar hér á landi en íslenskir ríkisborgarar. Þeir geta komið hingað og farið í aðgerð á Klíníkinni og fengið hana greidda hjá sínum opinberu sjúkratryggingum en ekki íslenskir ríkisborgarar. Þau hjá Klíníkinni eru nógu góð til að laga og hjálpa til á Landspítalanum vegna COVID-19, og það með samþykki ríkisstjórnarinnar, en þau eru ekki boðleg til að binda enda á fjárhagslegar, andlegar og líkamlegar pyndingar hjá þjáðu og illa veiku fólki,“ sagði hann.
Grimmileg refsing fyrir að slasast eða veikjast
Guðmundur Ingi sagði enn fremur að það eina sem í boði væri hjá ríkisstjórninni væri að þetta fólk bryddi rótsterk verkjalyf, þ.e. ópíóíða sem gerði það jafnvel að fíklum eða öryrkjum fyrir lífstíð.
„Að bryðja 15 til 20 töflur á dag á biðlista eftir aðgerðum svo mánuðum eða árum skiptir og þar af tvær til þrjár töflur vegna aukaverkana af verkjalyfjum er ofbeldi af verstu gerð,“ sagði hann og bætti því við að hann þekkti af eigin raun „verkjafangelsisofbeldið“ á biðlista, sem væri ótrúlega grimmileg refsing fyrir það eitt að slasast eða bara veikjast, og hvað þá ef fólk væri með fjölskyldur og börn.
„Og fólk sem er í fullri vinnu er að detta út af vinnumarkaðnum. Mannréttindi, jafnrétti og jafnræði eru fótum troðin í þessu máli og ríkisstjórninni ber að stöðva þetta ofbeldi strax,“ sagði hann að lokum.