Þingmenn gagnrýna fjarveru ráðherra – Forseta ekki kunnugt um að „mannfall hefði orðið í ráðherraliðinu“

„Þarf ekki bara að fækka ráðherrum og þá koma fleiri ráðherrar aftur?“ spurði einn þingmaður þegar fjarvera ráðherranna var rædd á Alþingi í dag.

Birgir Ármannsson forseti Alþingis.
Birgir Ármannsson forseti Alþingis.
Auglýsing

Nokkrir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag að ein­ungis tveir ráð­herrar verða til svara á morgun í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þing­menn gagn­rýna ráð­herra­liðið fyrir slíkt en stjórn­ar­and­staðan var harð­orð í garð þess í jan­úar síð­ast­liðnum.

Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hóf umræð­una og benti á að í þing­skap­a­lögum segði að í allt að hálf­tíma á fyr­ir­fram ákveðnum þing­fundum að jafn­aði tvisvar í hverri starfsviku, gæti for­seti heim­ilað þing­mönnum að bera fram munn­legar fyr­ir­spurnir til ráð­herra án nokk­urs fyr­ir­vara. For­sæt­is­ráð­herra skyldi fyrir klukkan 12 á hádegi und­an­far­andi föstu­dag til­kynna for­seta hvaða ráð­herrar að jafn­aði, eigi færri en þrír, yrðu til svara á þing­fundum í næstu viku.

Auglýsing

„Við höfum áður rætt fjar­veru ráð­herra hér í þingsal, en nú ber svo við að það eru heims­sögu­legir við­burðir í gangi sem varða alla íbúa jarð­ar­inn­ar, en líka á marg­vís­legan hátt almenn­ing á Íslandi. Á morgun háttar svo til að ein­ungis tveir af 12 ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands treysta sér til að mæta hér við óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurna­tíma. Það sætir furðu á slíkum tímum að ekki skuli fleiri treysta sér til að koma hingað og svara þing­mönnum og spurn­ingum þeirra,“ sagði hún.

Helga Vala Helgadóttir Mynd: Bára Huld

Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis svar­aði og sagði að honum væri reyndar ekki kunn­ugt um að slíkt mann­fall hefði orðið í ráð­herra­lið­inu varð­andi morg­un­dag­inn en hann myndi hins vegar taka það til athug­unar hvort hægt væri að bæta úr þessu þannig að það yrðu ekki færri en þrír til and­svara á morg­un.

„Með mik­il­væg­ustu dag­skrár­liðum hér í þessum þingsal“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata þakk­aði Helgu Völu fyrir að vekja athygli á þessu og fyrir að vekja athygli for­seta á þessu, sem virt­ist hafa tekið vel í þessa beiðni og væri það vel.

„Ég vil hins vegar árétta að mögu­lega er líka til­efni til þess að auka tæki­færi stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna til að fara í óund­ir­búnar fyr­ir­spurn­ir. Þessar reglur voru settar upp þegar það voru tals­vert færri flokkar á þingi en núna. Og raunar mætti alveg íhuga að fjölga þeim fyr­ir­spurnum sem mega koma fyrir ráð­herra vegna þess að það er vissu­lega að mörgu að spyrja og að mörgu að huga.

Þessi dag­skrár­liður er með mik­il­væg­ustu dag­skrár­liðum hér í þessum þing­sal þar sem stjórn­ar­and­staðan sér­stak­lega, og jú, stundum stjórn­ar­lið­ar, fá tæki­færi til að veita fram­kvæmd­ar­vald­inu virkt aðhald í störfum sín­um. Þar af leið­andi beini ég því líka til for­seta að íhuga hvort ekki megi auka við óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir og tryggja betri mönnun en þrjá ráð­herra af 12,“ sagði hún.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Mynd: Bára Huld Beck

For­seti segir að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki brugð­ist illa við

Andrés Ingi Jóns­son þing­maður Pírata steig næst í pontu undir sama lið og sagði að þessi umræða væri end­ur­tekið efni.

„Ég fletti því upp og 20. jan­úar áttum við sam­bæri­legt sam­tal við for­seta vegna þess að aðeins tveir ráð­herrar höfðu boðað sig í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir dag­inn eft­ir. Þá bar svo við að for­seti hafði orðið þess áskynja áður og farið þess á leit við Stjórn­ar­ráðið að manna dag­skrár­lið­inn betur en hafði fengið nei frá for­sæt­is­ráð­herra. Ég ætla bara að segja það sama og ég sagði 20. jan­ú­ar, að við í stjórn­ar­and­stöð­unni, örugg­lega öll sem eitt, stöndum með for­seta í að fá ráð­herra til að mæta hér í þing­sal til að svara spurn­ingum þing­manna eins og þeim ber að gera og ef for­sæt­is­ráð­herra bregst jafn illa við beiðni for­seta í þetta skiptið og hún gerði 20. jan­úar þá stöndum við með for­seta og Alþing­i.“

Andrés Ingi Jónsson Mynd: Bára Huld Beck

Birgir svar­aði í annað sinn og sagð­ist vilja geta þess að hann liti ekki svo á að for­sæt­is­ráð­herra hefði brugð­ist illa við þeirri mála­leitan sem átti sér stað 20. jan­úar síð­ast­lið­inn „en aðstæður voru með þeim hætti að ekki var hægt að verða við þrýst­ingi af hálfu for­seta um að fjölga ráð­herrum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­um. Á því er nokkur mun­ur.“

Á sama tíma og ráð­herrum hefur fjölgað þá fækkar þeim sem vilja koma

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins tók undir með þeim sem á undan höfðu kom­ið.

Guðmundur Ingi Mynd: Bára Huld Beck

„Ég kom hingað upp síð­ast líka. Ég held að þetta sé bara því að kenna að skamm­tíma­minni rík­is­stjórn­ar­innar er svona lít­ið, það er svo stutt síðan þetta var síð­ast. En kannski er aðal­at­riðið það að á sama tíma og ráð­herrum hefur fjölgað þá fækkar þeim sem vilja koma. Þarf ekki bara að fækka ráð­herrum og þá koma fleiri ráð­herrar aft­ur?“ spurði hann að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent