Heitar umræður sköpuðust á Alþingi í morgun um dagskrártillögu Helga Hrafns Gunnarssonar þingmanns Pírata um að koma frumvarpi Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns VG og formanns atvinnuveganefndar, um strandveiðar á dagskrá fyrir þinglok. Tillagan var felld, en 10 samþykktu tillöguna, 30 felldu hana, 19 sátu hjá og 4 voru fjarstaddir.
Kjarninn hefur heimildir fyrir því að vel hafi gengið hjá þingflokkunum í gærkvöldi að semja um þinglok þangað til Helgi Hrafn kom með fyrrnefnda dagskrártillögu. „Tillagan sprengdi fundinn,“ segir einn viðmælenda Kjarnans en í frumvarpinu er meðal annars lagt til að ráðherra skuli tryggja 48 daga á strandveiðitímabilinu 2021.
Frumvarpinu var dreift á meðal alþingismanna í fyrradag en flutningsmenn þess voru fimm þingmenn Vinstri grænna og Framsóknarflokksins, þau Lilja Rafney, Ari Trausti Guðmundsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Halla Signý Kristjánsdóttir. Nú eru einungis Lilja Rafney og Halla Signý skráðar sem flutningsmenn frumvarpsins.
Sakar Lilju Rafneyju um að kenna stjórnarandstöðunni um að málið kæmist ekki á dagskrá
Helgi Hrafn sagði í umræðum um atkvæðagreiðsluna að frumvarpið væri mikilvægt í ljósi þess að nú væru 600 til 700 smábátasjómenn sem stæðu frammi fyrir mjög alvarlegu atvinnuleysi.
„Málið er gott, en háttvirtur þingmaður Lilja Rafney Magnúsdóttir hefur hins vegar verið að spreða því út um allan bæ að það sé á einhvern hátt stjórnarandstöðunni að kenna að málið komist ekki á dagskrá. Ég vil halda því til haga að háttvirtur þingmaður er formaður atvinnuveganefndar og ég sit í þeirri nefnd. Háttvirtur þingmaður er með þingflokksformann sem semur ekki um málið fyrir hennar hönd. Háttvirtur þingmaður er í sama flokki og virðulegur forseti sem setur málið ekki á dagskrá. Háttvirtur þingmaður er í sama flokki og hæstvirtur forsætisráðherra sem virðist ekki styðja málið. Það erum við sem styðjum málið, Píratar, og stjórnarandstaðan vænti ég, við viljum setja málið á dagskrá fyrir smábátasjómenn. Sjáum hvað setur,“ sagði hann.
Tundurskeyti inn í þinglokasamninga
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Birgir Ármannsson, sagði í sömu umræðum að hann vissi ekkert um stympingar einstakra þingmanna og ætlaði ekki að blanda sér í það.
„Hins vegar er alveg ljóst að það er auðvitað ekki hægt að taka mál af þessu tagi á dagskrá í miðju kafi þegar við erum að reyna að ganga frá þinglokum. Málið kom fram, eftir því sem ég best veit, í gær. Mér finnst alveg fráleitt af Pírötum að vera að senda þetta tundurskeyti inn í þinglokasamninga með þessum hætti til að raska málum. Í þinglokasamningum er verið að semja um fjöldamörg mál, meðal annars er verið að semja um fjöldamörg mál út af borðinu sem hafa fengið umfjöllun í þinginu í allan vetur. Það leiðir bara af sjálfu sér að það er ekki hægt að klára allt saman. Með því að stilla mönnum upp við vegg með þessum hætti eru þinglokasamningar settir í uppnám. Þess vegna er auðvitað ekkert annað að gera en að fella þessa dagskrártillögu,“ sagði hann.
„Ég hef verið hér í tólf ár og ég man ekki eftir svona vinnubrögðum“
Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Miðflokksins sagði að það væri með ólíkindum að formaður atvinnuveganefndar, Lilja Rafney, skyldi fara í þennan leiðangur, að leggja fram þingmál vitandi að ekki væri meirihluti fyrir því hjá stjórnarflokkunum að koma því inn í þingið – og færi í þá vegferð að „móbilisera einhverja bylgju um landið“ um að kenna stjórnarandstöðunni um að málið kæmist ekki á dagskrá.
„Ég hef verið hér í tólf ár og ég man ekki eftir svona vinnubrögðum, að menn leggist svona lágt, að fara í slíkan leiðangur, ég verð að segja það. Á sama tíma er í atvinnuveganefnd þingmál sem myndi taka á því sama sem háttvirtur formaður nefndarinnar vill ekki taka á dagskrá sem varð til þess að fulltrúar Miðflokksins í nefndinni bókuðu athugasemd um að taka málið af dagskrá, en að sjálfsögðu varð formaður nefndarinnar ekki við því. Það er ekki boðlegt að taka þátt í þessu. Við munum ekki greiða atkvæði í þessari atkvæðagreiðslu vegna þess hvernig formaður atvinnuveganefndar hagar sér í málinu,“ sagði Gunnar Bragi.
Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Miðflokksins steig einnig í pontu og sagði að þessi dagskrártillaga væri sýndarmennska og popúlismi af aumustu sort. „Það er ekki nokkur leið að samþykkja eitthvað sem er sett fram til að þyrla upp ryki og skemma fyrir öðrum þingstörfum. En fyrst og fremst – þetta er vont, ég veit það – er þetta aumasti popúlismi sem til er og við tökum ekki þátt í slíku.“
Málið gott í sjálfu sér en kemur fram á óheppilegum tíma
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingflokksformaður VG sagði að þetta mál væri mjög óheppilegt og kæmi fram á óheppilegum tíma.
„Málið er gott í sjálfu sér en ég tel ekki rétt á þessum síðustu lokametrum þegar við erum að reyna að ljúka þingi, og við vorum nú langt komin með það hér í gærkvöldi, að þetta mál sé tekið hér inn því að þetta er lagafrumvarp sem þarf auðvitað töluverða umræðu. Ég tel að að svo komnu máli, á þessum tímapunkti, sé bara ekki tími til þess að bæta einu máli ofan á. Við vorum búin að loka þeirri málaskrá sem við vorum með í höndum að mínu mati og allra annarra. Í samtölum okkar þingflokksformanna vorum við með ákveðinn lista sem við vorum að vinna með og héldum okkur stíft við hann. Ég vil ekki hvika frá því, þannig að Vinstrihreyfingin – grænt framboð mun ekki greiða þessu máli atkvæði sitt, þ.e. að við verðum á rauða takkanum fyrir utan formann atvinnuveganefndar.“
Kallaði atburðarásina leikrit
Þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Oddný Harðardóttir, tók jafnframt til máls við atkvæðagreiðsluna. „Sú staða sem komin er upp með þetta mál er í raun alveg með ólíkindum. Við þingflokksformenn sitjum nú og reynum að semja um þinglokin. Ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir eru búnir að taka af því borði mörg mál sem ég hefði gjarnan viljað að við tækjum hér til umræðu.
En í ljósi þess að við erum að vinna saman og reyna að loka þinginu og kjörtímabilinu þá er ég ekki hér með dagskrártillögu um að koma þeim mikilvægu málum á dagskrá. Ef það mál sem við erum að ræða hér um strandveiðar hefði verið eitt af forgangsmálum stjórnarflokkanna við samningaborðið þá hefði ég sannarlega fagnað því og greitt því atkvæði. Ef það væri hér á dagskrá væri ég sammála því. En þessi atburðarás, þetta leikrit sem búið er að setja upp, bæði af hálfu formanns atvinnuveganefndar og háttvirts þingmanns Helga Hrafns Gunnarssonar — ég get ekki tekið þátt í því eða við í Samfylkingunni og við munum sitja hjá við þessa afgreiðslu,“ sagði Oddný.
Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar tók í sama streng og Oddný og sagði að þingmenn væru staddir „í einhverri senu í leikhúsi fáránleikans“.
„Í stað þess að hafa farið í umræðu um mikilvægt mál á sínum tíma, á eðlilegum tíma, samþykkt tillögu sem fyrir var, unnið með hana, verið fyrr með þetta mál, tekið samtalið til að útkljá mál sem varðar hagsmuni fjölda sjómanna og fjölskyldna þeirra, þá stöndum við hér föst í einhverjum formsatriðum af því að enn og aftur sýna stjórnvöld, sér í lagi formaður atvinnuveganefndar, að samvinna er eitthvert óþekkt fyrirbæri á þeim bænum. Þetta er staða sem hefði ekki þurft að koma upp, en við stöndum frammi fyrir henni. Við þingflokksformenn höfum setið og reynt að ná saman um þinglok. Þingflokksformaður Samfylkingar fór hér vel yfir málið.“
Hún sagði að fjöldi góðra mála hefði farið út af borðinu og að þau hefðu viljað sjá fjölmörg mál fá forgang. „Í ljósi stöðunnar ætla ég ekki að rjúfa það samkomulag. Þetta er hins vegar þörf og mikilvæg umræða og ég þakka Pírötum fyrir að hafa sett hana á dagskrá hér í þingsal, en við í Viðreisn sitjum hjá við afgreiðslu þessarar tillögu.“
Skoraði á þingmenn að hætta þessum „fífladansi“
Inga Sæland formaður Flokks fólksins lét sig ekki vanta í umræðurnar. „Hefði, myndi, skuli og allir vinir hans — ef þetta hefði verið í gær eða í fyrradag eða um áramótin. Staðreyndin er sú að staðan er að koma upp núna. Við erum hér núna og það er ekkert hægt, hvorki fyrir formann háttvirtrar atvinnuveganefndar né hvern annan sem er, að horfa fram hjá því. Í raun og veru hefði henni verið í lófa lagið að koma með þetta mál mun fyrr ef hún hefði vogað sér að sýna hæstvirtum sjávarútvegsráðherra hornin aðeins þar sem honum virðist vera nákvæmlega sama um smábátasjómenn.
Það breytir ekki þeirri staðreynd að við erum hér til að reyna að tryggja að þeir geti fengið þessa aumu 48 daga sem þeim er úthlutað ár hvert til þess að stunda strandveiðar. Það er nú ekki meira en það. Ég skora því á okkur öll hér, hvort sem fólk er í fýlu út af þessu eða hinu, að hætta þessum fífladansi, sem er okkur til ævarandi skammar, taka þetta út fyrir pólitískar raðir og rifrildi og einfaldlega tryggja, eins og við gerðum um laxeldið á sínum tíma, þegar allt var í voða fyrir vestan, að smábátasjómennirnir okkar geti að minnsta kosti fengið að veiða þessa 48 daga skammlaust. Það er í okkar valdi að svo megi verða,“ sagði Inga.
Hagsmunir sjómanna skipta máli
Helgi Hrafn sakaði Lilju Rafney um lygar í fyrrnefndum umræðum um málið en forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, bað þingmenn um að gæta orða sinna. Helgi Hrafn sagði að hún hefði kosið að ljúga og að kenna Pírötum um að standa í vegi fyrir málinu með því að hafa það ekki með í sínum samningum, í þinglokasamningum.
„Hún þurfti ekki að gera það. Þar sem við höfum gert í kjölfarið er að við höfum lagt til að málið verði tekið til umræðu hér og það er full alvara á bak við það. Gerum það bara. Það væri rétti leikurinn af meiri hlutanum, að taka málið til umræðu og samþykkja það. En nei, það má ekki.“
Bað hann hagsmunaaðila í þessu máli að fylgjast vel með atkvæðagreiðslutöflunni því að atkvæðin skiptu máli. „Niðurstaðan skiptir máli. Hagsmunir sjómanna skipta máli og eru meira en einhver leikur í bragði stjórnmálamanna.“
Sagði að það væri ekki satt að hún væri að ljúga
Lilja Rafney svaraði Helga Hrafni og Gunnari Braga í næstu ræðu og sagðist ekki ætla að taka þátt í því í þessari heitu umræðu – þar sem allt virtist ætla að fara á hliðina yfir – að vera sökuð um að ljúga.
„Það er ekki satt,“ sagði hún og bætti því við að Gunnar Bragi ætti að hugsa um að feta leiðir sannleikans. „Ég hef ekki logið neitt í þessu máli. Þingið hefur fulla burði til þess þegar mál koma inn að taka þau á dagskrá í þinglokasamningum. En það var ekki gert og þannig liggur þetta mál. Og inn í atvinnuveganefnd er frumvarp frá hæstvirtum sjávarútvegsráðherra sem dregur úr afla í strandveiðar og bíður upp á að róa öllum dögum svo strandveiðar hefðu klárast miklu fyrr, hefði það frumvarp nokkurn tímann verið samþykkt. Þannig er nú sá veruleiki. En ég held áfram að berjast fyrir strandveiðum og fyrir sjávarbyggðir landsins og læt ekki saka mig um það að ljúga að einum eða neinum. Það er ekki minn háttur,“ sagði hún.