Heildarútflutningur á þjónustu á fjórða ársfjórðungi 2014 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 110,9 milljarðar króna en innflutningur á þjónustu 99,1 milljarður. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 11,8 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi en var jákvæður um 18,9 milljarða á sama tíma árið 2013 á gengi hvors árs. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands, í tilkynningu sem birt var í morgun.
Samgöngur eru stærsti þjónustuliður í útflutningi og var afgangur vegna þeirrar þjónustu 23,2 milljarðar, að því er segir í tilkynningu Hagstofu Íslands. Önnur viðskiptaþjónusta er stærsti þjónustuliður í innflutningi og nam halli af þeirri þjónustu 17,3 milljörðum. Halli á ferðaþjónustu var 4,5 milljarðar, en heilt yfir árið var afgangurinn af ferðaþjónustu 44,8 milljarðar króna.
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2014 var útflutningur á þjónustu 499,2 milljarðar en innflutningur á þjónustu 360,4 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um tæpa 138,8 milljarða en var jákvæður um 145,8 milljarða á árinu 2013 á gengi hvors árs.
Samgöngur skiluðu 129,3 milljarða króna afgangi og ferðaþjónusta skilaði 44,8 milljarða afgangi á árinu 2014. Á móti var halli á annarri viðskiptaþjónustu 66,6 milljarðar á árinu 2014 samkvæmt bráðabirgðatölum.