Þorgerður Katrín: Mitt bakland hristir höfuðið yfir Sjálfstæðisflokknum

orger-ur-2-765x510.jpg
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, fyrrum vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þurfi að breyt­ast og að hann þurfi að opna sig meira, til dæmis gagn­vart umræðu um Evr­ópu­mál. Flokk­ur­inn þurfi líka að standa fyrir meira frelsi í land­bún­að­ar­málum og beita sér fyrir jöfnun atkvæða, en vægi atkvæða er í dag mjög ólíkt eftir kjör­dæm­um. "Ég held að menn séu hræddir við það vegna þess að þá missa þeir völd en þá verður bara svo að vera, rétt skal vera rétt," segir Þor­gerður um atkvæða­misvæg­ið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í föstu­dags­við­tali Frétta­blaðs­ins í dag.

Þar segir hún einnig að hennar bak­land hristi höf­uðið þegar hún tali fal­lega um Sjálf­stæð­is­flokk­inn. "Ég trúi því að menn vilji enn þá hafa hann sem ríkj­andi afl. Ef það ger­ist hins vegar ekki, ég ætla ekki að draga dul á það, þá er greini­lega flötur fyrir sterku miðju­afli, sem er fram­sýnt og frjáls­lynt. ­Sem þarf ekki að taka til­lit til ein­hverra hags­muna úti um allt, heldur verður það líka frjálst og óháð. Hvort sem það er Evr­ópu­sinnað eða ekki.“

Þor­gerður hefur ítrekað verið orðuð við for­ystu­hlut­verk í hinu nýja stjórn­mála­afli Við­reisn, sem er nokk­urs­konar klofn­ings­fram­boð úr Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Hún segir að það sé ekki endi­lega stjórn­mála­aflið sem hún sé að tala um. Það gæti líka verið hópur af frjáls­lyndum hægrisinn­uðum kon­um.

Auglýsing

Þyrfti mikið til að fá hana aftur í stjórn­mál



Hún segir þó að það þyrfti eitt­hvað veru­lega mikið til að fá hana aftur inn í stjórn­mál, en hún hætti í þeim árið 2013 vegna skulda­mála eig­in­manns henn­ar, Krist­jáns Ara­son­ar. "Ég er í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, búin að vera þar og hef ekki kosið ann­að. Það þyrfti eitt­hvað mikið að ger­ast ef ég ætti ekki að gera það. Það breytir hins vegar ekki þeirri stað­reynd að það mætti ýmis­legt betur fara í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, ég held til dæmis að flokk­ur­inn minn verði að opna sig aðeins meira. Hann verði að hugsa um það sem hann hefur staðið fyrir í gegnum tíð­ina, að vera frjálst fram­sýnt umbóta­afl." Þor­gerður við­ur­kennir hins vegar að í mörgum málum hefði hún viljað sjá flokk­inn sinn "stærri og sýna meiri reisn."

Hún telur að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þurfi ekki að hafa áhyggjur af klofn­ings­fram­boði ef flokk­ur­inn tekur á þeim málum sem fólk sé að kalla eft­ir. Hún nefnir aukið frelsi í land­bún­aði og jöfnun atkvæða­vægis sem dæmi um slík mál. Auk þess þurfi Sjálf­stæði­flokk­ur­inn að læra af þeim stjórn­mála­öflum nútím­ans sem séu að ná til fólks. "Ég held það sé rangt ef menn ætla að horfa á Pírata og tala þá nið­ur. Ég held það sé margt mik­il­vægt sem við eigum að læra af því sem Píratar eru að setja fram, margt sem maður er ósam­mála, en margt áhuga­vert og eft­ir­tekt­ar­vert. Og fram­koma þeirra margra mjög til eft­ir­breytni. Eins og Helgi Hrafn í þing­inu og Hall­dór Auðar í borg­inni. Að mörgu leyti held ég að staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni, sem er knöpp og erf­ið, mark­ist af því að menn lærðu ekki nægi­lega mikið af því hvernig Besti flokk­ur­inn kom fram. Það var meira kapp lagt á að tala Besta flokk­inn niður, tala niður Jón Gnarr frekar en að draga fram það jákvæða".

Maður á ekki að vera í póli­tík til að fá enda­laust upp­klapp



Þor­gerður segir að það megi ekki ger­ast að ungt fólk missi áhugan á stjórn­mál­um. "Af hverju er póli­tíkin eins og hún er í dag? Af því að hún er ekki búin að breyt­ast nægi­lega mik­ið. Við getum nefnt mál sem við sem telj­umst til eldri kyn­slóð­ar­innar hrein­lega fött­uðum ekki að skiptu máli, sem tengj­ast Net­inu til dæm­is. Svo getum við ekki verið með leið­toga sem senda út skoð­ana­könnun áður en þeir mynda sér skoð­un. Ég þoli það ekki. Maður er ekki í póli­tík til að standa á svið­inu og fá enda­laust upp­klapp.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None