Þrír sóttu um að verða dómari við MDE – Oddný sú eina sem sótti um aftur

Nefnd á vegum forsætisráðherra mat þrjá umsækjendur um dómaraembætti við Mannréttindadómstól Evrópu hæfa fyrr á þessu ári. Tveir drógu umsókn sína til baka og auglýsa þurfti embættið aftur.

MDE
Auglýsing

Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari er sú eina þeirra þriggja sem sóttu um stöðu emb­ættis íslensks dóm­ara við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu (MDE) fyrr á þessu ári sem hefur sótt aftur um emb­ætt­ið. 

Auk hennar sóttu Dóra Guð­munds­dóttir lög­fræð­ingur og Páll Þór­halls­son, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, um emb­ættið áður en umsókn­ar­frestur rann út 8. ágúst síð­ast­lið­inn.

Þing Evr­­­ópu­ráðs­ins tekur ákvörðun um það hvert þeirra verður fyrir val­inu sem íslenski dóm­­­ar­inn við rétt­inn, en Evr­­­ópu­ráðið fór þess á leit við íslensk stjórn­­­völd í fyrra að þau myndu til­­­­­nefna þrjú dóm­­­ara­efn­i sem myndu keppa um að taka við af Róberti Spanó, sem her var dóm­ari við rétt­inn frá 2013. Kjör­tíma­bil Róberts rennur út í lok októ­ber næst­kom­andi og hann má ekki sækj­ast eftir áfram­hald­andi set­u. 

Auglýsing
Embættið var fyrst aug­lýst til umsóknar seint á síð­asta ári og umsókn­ar­frestur var til 14. jan­ú­ar. Þá sóttu þrír um emb­ætt­ið. Auk Odd­nýjar voru það Jónas Þór Guð­­munds­­son, ­lög­­mað­ur og stjórn­ar­for­maður Lands­virkj­un­ar, og Stefán Geir Þór­is­son, lög­mað­ur­.  

Fimm manna nefnd sem Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra skip­aði til að leggja mat á þessa þrjá umsækj­endur lauk störf­um í byrjun febr­ú­ar. Nið­­ur­­staða hennar var sú að allir umsækj­end­­urnir þrír sem sótt­­ust eftir til­­­nefn­ingu teld­ust hæfir til að vera verða til­­­nefndir af hálfu Íslands. 

Í byrjun júní tók svo nefnd ráð­gjafa á vegum Evr­ópu­ráðs­ins umsækj­end­urna í við­tal. Eftir þau við­töl drógu Jónas og Stefán Geir hins vegar umsóknir sínar til baka. Við­mæl­endur Kjarn­ans segja að nefndin hafi frestað því að skila nið­ur­stöðu sinni eftir við­tölin þar sem umsækj­enda­hóp­ur­inn hafi þótt of veikur til að gegna stöð­unni. Und­an­tekn­ingin þar hafi verið Odd­ný. Þar sem reglur um skipun dóm­ara í emb­ætti hjá MDE séu þannig að kjósa þurfi milli þriggja umsækj­enda var ekki annað að gera en að aug­lýsa aftur eftir umsækj­end­um. 

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu í Strass­borg fjallar um mál sem til hans er vísað af ein­stak­lingum og samn­ings­að­ilum vegna meintra brota á ákvæðum mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu eða samn­ings­við­aukum við hann. Dóm­stóll­inn er skip­aður einum dóm­ara frá hverju samn­ings­ríkja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent