Þverpólitísk samstaða þegar frumvarp um stöðugleikaskatt var samþykkt á Alþingi

17980682404_6f264aa63c_z.jpg
Auglýsing

Alþingi sam­þykkti í dag frum­varp Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um stöð­ug­leika­skatt. Þverpóli­tísk sam­staða var um afgreiðslu máls­ins í þing­inu. Alls greiddu 55 þing­menn atkvæði með lög­un­um, sjö voru fjar­staddir og einn greiddi ekki atkvæði. Sá var Jón Þór Ólafs­son, þing­maður Pírata.

Í lög­unum felst að 39 pró­sent ein­skiptis skattur mun leggj­ast á slitabú föllnu bank­anna ef þau hafa ekki mætt ákveðnum stöð­ug­leika­skil­yrðum sem stjórn­völd hafa sett fyrir þessu ára­mót. Sá skattur á að skila rík­is­sjóði 682 millj­örðum króna að teknu til­liti til frá­drátt­ar­liða.

Stærstu kröfu­hafar allra slita­bú­anna hafa allir lýst því yfir­ að þeir vilji ganga að stöð­ug­leika­skil­yrð­un­um. Fram­kvæmda­hópur um losun hafta hefur auk þess ­stað­fest að til­lögur slitabú Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda falli innan þess ramma sem stýri­hópur um losun hafta hafði sam­þykkt. Því er búið að mæla með því að slita­búin fái und­an­þágu­heim­ild frá höftum til að ljúka nauða­samn­ingum á grund­velli til­lagna sinna. Gangi það eftir mun stöð­ug­leika­skatt­ur­inn aldrei verða að veru­leika. Ekki liggur fyrir hversu miklu sam­komu­lag við kröfu­hafa muni skila rík­is­sjóði. Það fer m.a. eftir því hvaða verð fæst fyrir Arion banka og Íslands­banka, sem eru í eigu tveggja slita­búa. Bjarni Bene­dikts­son hefur sagt að um geti verið að ræða um 450 millj­arða króna. Sér­fræð­ingar sem Kjarn­inn fékk til að reikna út mögu­legan ávinn­ing rík­is­sjóðs út frá til­lögum slita­bú­anna telja að sá ávinn­ingur verði á bil­inu 300 til 400 millj­arðar króna. DV hefur haldið því fram að stöð­ug­leika­fram­lag ætti að skila meira en 500 millj­örðum króna.

Auglýsing

Frum­varpið var lagt fram 8. júní síð­ast­lið­inn. Þann sama dag höfðu Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnt aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda til los­unar fjár­magns­hafta á fundi í Hörpu. Frum­varpið var samið í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, í sam­vinnu við for­sæt­is­ráðu­neyti, Seðla­banka Íslands og rík­is­skatt­stjóra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None