Tillögur um losun fjármagnshafta kynntar á mánudag

15580686798-9d2182f132-z.jpg
Auglýsing

Til­lögur um losun fjár­magns­hafta verða kynntar fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd á mánu­dag­inn, 8 . des­em­ber. Til­lög­urn­ar, sem hafa verið í mótun í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, liggja nú full­mót­aðar fyr­ir. Þetta kemur fram í nýrri frétt Bloomberg –frétta­veit­un­ar.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vildi ekki tjá sig um málið þegar Bloomberg leit­aði eftir við­brögðum við frétt­inni. Kjarn­inn greindi frá því um miðjan nóv­em­ber að til stæði að kynna áætl­un­ina síðla í nóv­em­ber eða snemma í des­em­ber.

Fyrr í dag var til­kynnt um að Seðla­banki Íslands hefði veitt slita­búi gamla Lands­bank­ans (LBI hf.) und­an­þág­u frá fjár­magns­höft­u­m til að greiða for­gangs­kröfum sínum í kjöl­far sam­komu­lags sem slita­búið gerði við nýja Lands­bank­ann um breytta skil­mála skulda­bréfa þeirra á milli. Slita­búið fær því að greiða um 400 millj­arða króna af for­gangs­kröfum til kröfu­hafa gegn því að lengja í skulda­bréfum sem nýi Lands­bank­inn skuldar því. Umfang þeirra er um 228 millj­arðar króna. Loka­greiðsla verður nú árið 2026 í stað árs­ins 2018.

Auglýsing

Mögu­legur útgöngu­skattur



Áætl­unin sem Bloomberg segir að verði kynnt á mánu­dag mun að stóru leyti snú­ast um hvernig farið verður með slitabú Glitnis og Kaup­þings, auk nokk­urra smærri fall­ina fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Í fjöl­miðlum hefur verið fjallað um að lík­lega verði um að ræða svo­kall­aðan flatan útgöngu­skatt á eignir . Ef kröfu­hafar vilji út þurfi þeir að greiða flatan skatt af öllu fjár­magni sem þeir fái að fara með út úr íslensku efna­hags­kerfi. Sam­hliða verði kynntar hug­myndir um hvernig leyst verði úr eign­ar­haldi Íslands­banka og Arion banka, sem í dag eru báðir í eigu erlendra kröfu­hafa. Morg­un­blaðið greindi meðal ann­ars frá því að skatt­ur­inn gæti verið allt að 35 pró­sent.

Gangi kröfu­haf­arnir ekki að þessu muni stjórn­völd vera til­búin að halda þeim áfram í höftum á meðan að öllum öðrum: t.d. íslenskum líf­eyr­is­sjóð­um, heim­il­um, fyr­ir­tækj­um, verði hleypt út.

Á mánu­dag mun koma í ljós hvort þessi leið verði far­in.

Hund­ruð millj­arða í rík­is­sjóð



Ljóst er að eftir miklu er að slægj­ast. Eignir þrota­bús Glitnis eru 944 millj­arðar króna. Eignir þrota­bús Kaup­þings eru 789 millj­arðar króna. Þrotabú Lands­bank­ans á um 218 millj­arða króna í eignum umfram for­gangs­kröf­ur.  AL­MC, áður þrotabú Straums Burða­r­áss fjár­fest­inga­banka, á eignir upp á 97 millj­arða króna.  Eignir SPB hf., sem áður hét Spari­sjóða­bank­inn/Ice­bank, eru 106 millj­arðar króna. Svo fátt eitt sé nefnt.

Ef útgöngu­skatt­ur­inn yrði til dæmis tíu pró­sent er ljóst að mörg hund­ruð millj­arðar króna myndu skila sér í rík­is­sjóð.

Þá er hin snjó­hengj­an, skamm­tímakrónu­eignir erlendra aðila. Þær eru nú um 307 millj­arðar króna. Þessi hópur hefur þegar haft útgöngu­leið í gegnum gjald­eyr­is­út­boð Seðla­bank­ans og hina svoköll­uðu fjár­fest­inga­leið hans. Þá selja þeir krónur sínar fyrir gjald­eyri þeirra sem vilja koma inn í íslenskt efna­hagslif með afslætti.

Ef útgöngu­skatt­ur­inn yrði til dæmis tíu pró­sent er ljóst að mörg hund­ruð millj­arðar króna myndu skila sér í rík­is­sjóð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None