Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

h_51735573.jpg
Auglýsing

Það er ýmis­legt á seyði í heim­inum í dag, eins og Business Insider greinir frá í þessum lista yfir tíu mik­il­væga hluti sem eru að ger­ast. Það getur verið ágætt að taka frí frá umræðum um þing­lok á Íslandi og renna yfir það sem er að ger­ast ann­ars stað­ar.



  1. Víga­menn sjíta und­ir­búa nú árás á liðs­menn Íslamska rík­is­ins í borg­inni Ramadi í Írak, til þess að reyna að ná borg­inni til baka. Íslamska ríkið náði völdum á borg­inni um helg­ina.


  2. Minnst fjöru­tíu manns lét­ust í aur­skriðu í Kól­umbíu í gær, en aur­skriðan féll af völdum mik­illar rign­ing­ar.


  3. Grikkir hafa sam­kvæmt grískum fjöl­miðlum fengið til­boð um sam­komu­lag við fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, sem myndi leysa út fimm millj­arða evra í neyð­ar­lán til Grikk­lands.


  4. Fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Taílands, Yingluck Shinawatra, kom fyrir rétt í dag vegna ákæru um van­rækslu í starfi.


  5. Kín­verjar hafa gert opin­berar stefnu­breyt­ingar í efna­hags­mál­um, sem miða að því að auka einka­neyslu, á kostnað fjár­fest­inga og útflutn­ings.


  6. Um 170 með­limir bif­hjóla­gengja í Texas voru ákærðir fyrir þátt­töku í skipu­lagðri glæp­a­starf­semi í gær, eftir skotárás á veit­inga­stað sem varð níu manns að bana.


  7. Olíu­verð hækkar nú vegna átaka í Írak og Jem­en, sem gætu stöðvað olíu­fram­leiðslu í ríkj­un­um.


  8. Tony Abbott, for­sæt­is­ráð­herra Ástr­al­íu, hefur hafnað því að veita áströlskum víga­mönnum sem hafa starfað fyrir erlend hryðju­verka­sam­tök frið­helgi vilji þeir hætta og snúa aftur heim.


  9. Banda­ríkin hafa lofað því að lána Úkra­ínu einn millj­arð Banda­ríkja­dala til þess að byggja upp efna­hag lands­ins á ný.


  10. Franski skop­mynda­teikn­ar­inn Ren­ald Luzier ætlar að hætta á blað­inu Charlie Hebdo. Luzier teikn­aði mynd­ina af Múhameð spá­manni sem birt­ist eftir að ráð­ist var inn á blaðið í jan­úar og starfs­menn voru myrt­ir. Hann segir of erfitt að halda áfram án kollega sinna sem lét­ust.


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None