Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

h_51834406-1.jpg
Auglýsing

Deilur Íslend­inga um stað­setn­ingu inn­an­lands­flug­vallar kom­ast ekki á list­ann yfir tíu mik­il­væg­ustu hlut­ina sem eru að ger­ast í heim­inum í dag að þessu sinni, en þar er ýmis­legt annað merki­legt.



  1. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn gerir ráð fyrir því að 1,6 millj­arða evra end­ur­greiðsla á láni ber­ist sjóðnum frá Grikk­landi á þriðju­dag­inn. Nú er fundað bæði í Brus­sel og Aþenu um áfram­hald sam­komu­lags um skulda­mál Grikkja.


  2. Francois Hollande Frakk­lands­for­seti segir að leigu­bíla­þjón­ustan Uber ætti að vera ólög­leg eftir að ofbeld­is­full mót­mæli brut­ust út í París í gær. Leigu­bíl­stjórar voru að mót­mæla þjón­ust­unni og þeir stöðv­uðu umferð, veltu bílum og brenndu hjól­barða.


  3. Einn er lát­inn og tveir alvar­lega særðir eftir árás á gasverk­smiðju í Lyon í Frakk­landi í morg­un. Francois Hollande for­seti segir að árásin beri öll merki hryðju­verka­árás­ar.


  4. Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna úrskurð­aði í gær að lög um heil­brigð­is­trygg­ingar skyldu standa, sem er mik­ill sigur fyrir Barack Obama Banda­ríkja­for­seta, enda breyt­inga á heil­brigð­is­trygg­inga­kerf­inu meðal hans stærstu mála.


  5. Evr­ópu­sam­bandið mun flytja 40 þús­und flótta­menn sem koma til Ítalíu og Grikk­lands til ann­arra ESB-­ríkja á næstu tveimur árum.


  6. Liðs­menn Íslamska rík­is­ins réð­ust gegn sýr­lenska stjórn­ar­hernum og liðs­sveitum Kúrda í Kobani í gær­kvöldi.


  7. 200 stúd­entar í Búrúndí leit­uðu skjóls í banda­ríska sendi­ráð­inu þar í gær, vegna vax­andi ólgu í land­inu. Einn vara­for­seta lands­ins hefur flúið til Belg­íu.


  8. Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti og Barack Obama Banda­ríkja­for­seti ræddu saman í síma í gær í fyrsta sinn frá því í febr­ú­ar. Þeir ræddu um versn­andi ástand í Sýr­landi og sam­komu­lag við Íran um kjarn­orku­mál.


  9. Mikil flóð eru nú í Sochi, rúss­nesku borg­inni sem hýsti Vetr­ar­ólymp­íu­leik­ana í fyrra. Hluti borg­ar­innar er undir vatni og að minnsta kosti einn hefur látið líf­ið.


  10. Fjöl­miðla­sam­steypan IAC/Inter­Act­ive sem á og rekur stefnu­móta­síð­una Match.com og smá­forritið Tinder hyggst setja þann hluta sam­steypunnar sem rekur stefnu­móta­síð­urnar á mark­að.


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None