Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Blatter-and-Putin_Bloomberg.jpg
Auglýsing

Business Insider tekur reglu­lega saman lista yfir mik­il­væg­ustu hlut­ina sem eru að ger­ast í heim­inum í dag. Aldrei þessu vant kemur Ísland lít­il­lega við sögu!



  1. Kín­verski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn hélt áfram að falla við opnun mark­aða í dag.


  2. Yanis Varoufa­kis, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, segir að hann hafi langað til að „hakka“ skatt­kerfið í Grikk­landi og breyta gjald­miðl­inum aftur í drökmu án þess að segja neinum frá því.


  3. Lög­fræð­ingur Don­ald Trump hefur hótað tveimur blaða­mönnum mál­sókn fyrir að skrifa umdeilda grein um Trump og fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, Ivönu. Blaða­menn­irnir vinna hjá The Daily Beast og sögðu frá því að í skiln­aði hjón­anna fyrr­ver­andi greindi Ivana frá því að Don­ald hefði nauðgað henni, en síðar sagði hún það orða­lag ekki nákvæmt en að henni hefði fund­ist hann mis­nota hana.


  4. Atl­ants­hafs­banda­lagið heldur í dag neyð­ar­fund til að ræða hætt­una sem Tyrk­landi stafar af Íslamska rík­inu. Tyrkir virkj­uðu fjórðu grein stofnsátt­mála banda­lags­ins um helg­ina, en þetta er aðeins í fimmta skipti í sög­unni sem það er gert.


  5. Lög­regla í Pek­ing í Kína hefur lokað stórri verk­smiðju þar sem fals­aðir iPhone símar voru fram­leidd­ir. Mið­aldra hjón ráku verk­smiðj­una sem sögð er hafa verið 19 millj­óna dala virði.


  6. Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seti hefur sagt að Sepp Blatt­er, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri FIFA, eigi skilið að fá Nóbels­verð­launin.


  7. David Camer­on, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, lofar því að berj­ast gegn „óhreinu fjár­magni“ á hús­næð­is­mark­aði í Bret­landi. Landið eigi ekki að verða skjól fyrir pen­inga­þvætti.


  8. Teva Pharmaceut­ical Industries hefur keypt hluta af All­ergan, móð­ur­fé­lagi Act­a­vis á Íslandi, eins og Kjarn­inn hefur greint frá. Kaupin eru stærstu ein­stöku við­skipti í sögu Ísra­els.


  9. Volkswagen hefur tekið fram­úr­ Toyota, er orð­inn stærsti fram­leið­andi bíla í heim­in­um.


  10. Stripe, greiðslu­fyr­ir­tæki í Sílíkondaln­um, hefur fengið inn fjár­magn frá fjár­fest­inga­hópi sem greiðslu­kort­ar­is­inn Visa leið­ir, og nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið er nú metið á fimm millj­arða Banda­ríkja­dala.


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None