Tólf manns sóttust eftir embætti ríkisendurskoðanda, en forsætisnefnd Alþingis hvatti áhugasama einstaklinga í byrjun febrúar til þess að senda inn erindi og lýsa yfir áhuga, eftir að Skúli Eggert Þórðarson fyrrverandi ríkisendurskoðandi hafði verið skipaður ráðuneytisstjóri nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis.
Á meðal þeirra sem hafa lýst því yfir að þeir hafi áhuga á að taka við embættinu eru starfandi Guðmundur Björgvin Helgason, sem í dag er starfandi ríkisendurskoðandi.
Þau sem gefa kost á sér:
- Ásgeir Brynjar Torfason, PhD í reikningsskilum
- Birgir Finnbogason, löggiltur endurskoðandi
- Davíð Ólafur Ingimarsson, stjórnsýslufræðingur
- Eiríkur Einarsson, viðskiptafræðingur
- Guðmundur Björgvin Helgason, stjórnmálafræðingur
- Guðrún Torfhildur Gísladóttir, löggiltur endurskoðandi
- Jón Arnar Baldurs, löggiltur endurskoðandi
- Jón H. Sigurðsson, löggiltur endurskoðandi
- Jón Magnússon, viðskiptafræðingur
- Kristrún Helga Ingólfsdóttir, löggiltur endurskoðandi
- Páll Grétar Steingrímsson, löggiltur endurskoðandi
- Sigurður H. Helgason, stjórnsýslufræðingur.
Samkvæmt lögum mun forsætisnefnd nú gera tillögu til þingsins um einstakling til að gegna embættinu, sem svo verður kjörinn á þingfundi. Alþingi kýs ríkisendurskoðanda til sex ára í senn, en heimilt er að endurkjósa sama einstakling einu sinni.
Undirnefnd forsætisnefndar, sem þau Birgir Ármannsson, forseti Alþingis og formaður undirnefndar, Oddný G. Harðardóttir, 1. varaforseti, og Líneik Anna Sævarsdóttir, 2. varaforseti skipa, hefur gengið frá skipan ráðgjafarnefndar. Ráðgjafarnefndin verður undirnefndinni til aðstoðar við að gera tillögu til forsætisnefndar um þann einstakling sem forsætisnefnd tilnefnir.
Samkvæmt tilkynningu á vef Alþingi munu eftirtaldir sérfræðingar skipa ráðgjafarnefndina: Þorgeir Örlygsson, fv. forseti Hæstaréttar, sem er jafnframt formaður nefndarinnar, Katrín S. Óladóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum og framkvæmdastjóri Hagvangs, og Stefán Svavarsson, lektor og löggiltur endurskoðandi. Starfsmaður nefndarinnar er Heiðrún Pálsdóttir, ritari forseta Alþingis.