Nýr ríkisendurskoðandi kosinn í maí – Skil á úttekt á sölu hluta Íslandsbanka áætluð í júní

Sérstök ráðgjafarnefnd hefur verið skipuð vegna kosningar ríkisendurskoðanda sem fyrirhuguð er í maí. Embættið á að skila Alþingi niðurstöðu á úttekt á útboði og sölu ríkisins á 22,5% hlut í Íslandsbanka í júní.

Alþingi
Auglýsing

Þor­geir Örlygs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, Stefán Svav­ars­son, lög­giltur end­ur­skoð­andi, og Katrín D. Ólafs­dótt­ir, sér­fræð­ingur í mannauðs­málum og fram­kvæmda­stjóri Hag­vangs, hafa verið skipuð í ráð­gjaf­ar­nefnd vegna kosn­ingar rík­is­end­ur­skoð­anda. Þor­geir er jafn­framt for­maður nefnd­ar­inn­ar. Und­ir­nefnd vegna kosn­ingar rík­is­end­ur­skoð­anda var veitt umboð til ganga frá skipun nefnd­ar­innar í síð­asta mán­uði.

For­sætis­nefnd Alþingis var greint frá skipan nefnd­ar­innar í morg­un. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans mun nefndin hefja störf í þess­ari viku og munu þrír nefnd­ar­menn for­sætis­nefndar starfa náið með ráð­gjaf­ar­nefnd­inni. Það eru Birgir Ármanns­son, for­seti Alþing­is, Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, 1. vara­for­seti og Líneik Anna Sæv­ars­dótt­ir, 2. vara­for­seti. Vinna nefnd­ar­innar mun fara fram í apríl og áætlað er að nýr rík­is­end­ur­skoð­andi verði kos­inn í maí.

Stað­geng­ill rík­is­end­ur­skoð­anda er starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi

Í síð­ustu viku féllst Rík­is­end­ur­skoðun á beiðni fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um úttekt á útboði og sölu rík­is­ins á 22,5% hlut í Íslands­banka sem fram fór 22. Mars. Í til­kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar á föstu­dag segir að stefnt sé að því að nið­ur­staða úttekt­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í júní.

Auglýsing
Samkvæmt lögum um rík­is­end­ur­skoð­anda end­ur­skoðun rík­is­reikn­inga kýs Alþingi rík­is­end­ur­skoð­anda til sex ára í senn. Hann skal hafa þekk­ingu á reikn­ings­skilum og rík­is­rekstri auk stjórn­un­ar­reynslu og má ekki vera alþing­is­mað­ur. For­sætis­nefnd Alþingis til­nefnir full­trúa við kosn­ing­una.

Guðmundur B. Helgason er starfandi ríkisendurskoðandi. Mynd: Ríkisendurskoðun

Guð­mundur B. Helga­son stjórn­mála­fræð­ingur er starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi eftir að Skúli Egg­ert Þórð­ar­son, sem skip­aður var rík­is­end­ur­skoð­andi 2018, tók við emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu 1. febr­ú­ar. Í kjöl­farið fól for­seti Alþingis Guð­mundi að gegna starfi rík­is­end­ur­skoð­anda þar til kosn­ing nýs rík­is­end­ur­skoð­anda hefur farið fram á Alþingi. Guð­mundur Björg­vin er stað­geng­ill rík­is­end­ur­skoð­anda en hann er sviðs­stjóri hjá Rík­is­end­ur­skoðun og for­stöðu­maður skrif­stofu emb­ætt­is­ins á Akur­eyri. Hann var áður ráðu­neyt­is­stjóri í land­bún­að­ar­ráðu­neyti og mannauðs­stjóri hjá Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna í Jórdan­íu.

­Sama dag og Skúli Egg­ert hóf störf hjá ráðu­neyt­inu óskaði umboðs­­maður Alþingis eftir skýr­ingum á laga­­­legum grund­velli fyrir skipan eða tíma­bund­inni setn­ingu nýs ráðu­­­neyt­is­­­stjóra. Í bréfi sem menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráðu­­neytið sendi umboðs­­manni 10. febr­­úar kemur fram að Lilja hafi óskað eftir því við for­­seta Alþingis að Skúli Egg­ert yrði fluttur úr emb­ætti rík­­is­end­­ur­­skoð­unar til for­­seta Alþingis sem fall­ist var á með bréfi 27. jan­úar með vísan til 36. greinar laga um rétt­indi og skyldur starfs­­manna rík­­is­ins þar sem segir meðal ann­­ars að stjórn­­­vald, sem skipað hefur mann í emb­ætti, geti flutt emb­ætt­is­­mann í annað starf án aug­lýs­ing­­ar, enda liggi fyrir ósk eða sam­­þykki emb­ætt­is­­manns­ins sjálfs.

Eftir að athugun umboðs­manns hófst barst honum til­kynn­ing frá Alþingi þar sem aðkomu þings­ins að ákvörð­un­inni að skipa Skúla Egg­ert ráðu­­neyt­is­­stjóra var lýst, auk þess sem fram kom afstaða til þeirra laga­­sjón­­ar­miða sem byggt var á við flutn­ing­inn. Í kjöl­farið sendi umboðs­maður Lilju Alfreðs­dótt­ur, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, bréf þar sem fram kom að athugun hans á skipan þáver­andi rík­­is­end­­ur­­skoð­anda í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra nýs menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráðu­­neytis sé lok­ið.

Rík­is­end­ur­skoð­anda heim­ilt að rukka ríkið um úttekt­ina

Í til­kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar um úttekt á útboði og sölu á hlut í Íslands­banka segir að áætlun um afmörkun og fram­kvæmd úttekt­ar­innar liggi ekki fyrir en slík áætlun verði end­ur­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. „Í því sam­bandi er ítrekað að [...] rík­is­end­ur­skoð­andi [er] sjálf­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­kvæmt lög­un­um,“ segir í til­kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­un­ar.

Fyrir liggur því að starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi muni bera þung­ann af úttekt emb­ætt­is­ins á úttekt um söl­una á Íslands­banka.

Í til­kynn­ing­unni vísar Rík­is­end­ur­skoðun einnig í aðra máls­grein átt­undu greinar laga um rík­is­end­ur­skoð­anda og end­ur­skoðun rík­is­reikn­inga þar sem kveðið er á um gjald­töku. Þar segir að þegar „sér­stak­lega stendur á og nauð­syn­legt er að að rík­is­end­ur­skoð­andi skoði eða geri úttekt á með­ferð rík­is­fjár í til­teknu máli eða á til­teknu sviði er honum heim­ilt að taka gjald fyr­ir.“ Rík­is­end­ur­skoð­anda er því heim­ilt að taka sér­stakt gjald fyrir að gera úttekt á útboði og sölu á hlut í Íslands­banka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent