Tölvupóstur sem Sigríður Björk sendi Gísla Frey um Omos finnst ekki

sbg.jpg
Auglýsing

Tölvu­póstur sem Sig­ríður Björk Guð­jóns­dótt­ir, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, kveðst hafa sent Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, þann 20. nóv­em­ber árið 2013 með grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos, finnst hvorki í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu né hjá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesj­um.

Þetta kemur fram í svörum ráðu­neyt­is­ins og lög­reglu­stjóra­emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Per­sónu­vernd­ar, sem óskaði eftir að fá umræddan tölu­vpóst afhent­an.

Upp­lýs­ingar í minn­is­blaði gátu ekki komið úr grein­ar­gerð



 

Per­sónu­vernd hóf rann­sókn á sam­skiptum Sig­ríðar Bjarkar og Gísla Freys í kjöl­far ­yf­ir­lýs­ingar sem Sig­ríður sendi frá sér í vegna fréttar DV frá 18. nóv­em­ber, um að hún og Gísli Freyr hefðu ræðst við í síma dag­inn sem fréttir um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos birt­ust í fjöl­miðl­um. Í yfir­lýs­ing­unni við­ur­kenndi Sig­ríður að hún hefði sent Gísla Frey umbeðna grein­ar­gerð um mál­efni Omos.

Auglýsing

Umrædd grein­ar­gerð var afhent Per­sónu­vernd eftir dúk og disk, en tölvu­póst­ur­inn sem Sig­ríður Björk kveðst hafa sent Gísla Frey með grein­ar­gerð­inni er lyk­il­gagn í rann­sókn Per­sónu­vernd­ar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Sig­ríður Björk hefur ítrekað haldið fram að grein­ar­gerðin hafi verið send Gísla þann 20. nóv­em­ber, eða kvöldið eftir að fyrstu frétt­irnar um Tony Omos birtu­st, og því hafi ein­hverjar upp­lýs­ingar í frægu minn­is­blaði sem Gísli Freyr sendi fjöl­miðlum um hæl­is­leit­and­ann ekki getað komið úr henni.

Per­sónu­vernd bíður enn eftir að fá tölvu­póst­inn



Eftir að Per­sónu­vernd fékk upp­lýs­ing­ar um að umræddur tölvu­póstur hafi hvorki fund­ist hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu né lög­reglu­stjóra­emb­ætt­inu á Suð­ur­nesjum, sendi stofn­unin Gísla Frey og Sig­ríði Björk bréf þann 21. jan­úar síð­ast­lið­inn, þar sem þeim var veittur frestur til að afhenda tölvu­póst­inn. Frestur Sig­ríðar Bjark­ar r­ann út í dag, en Per­sónu­vernd féllst nýverið á beiðni hennar um lengri frest. Frestur Gísla Freys til að afhenda Per­sónu­vernd umræddan tölvu­póst­ rennur út á morg­un. Per­sónu­vernd hefur engin við­brögð ­fengið frá hon­um.

Eins og áður segir er tölvu­póst­ur­inn lyk­il­gagn í rann­sókn Per­sónu­verndar á sam­skiptum Sig­ríðar Bjarkar og Gísla Freys vegna leka­máls­ins. Bæði til að fá ­stað­fest að ­tölvu­póst­ur­inn hafi verið sendur dag­inn eftir að fyrstu frétt­irnar birt­ust um Tony Omos, og til að kanna hvort tölvu­póst­ur­inn hafi inni­haldið frek­ari upp­lýs­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None