Torg tapaði tæplega 600 milljónum á síðasta ári

Aðaleigandi Torgs, sem gefur meðal annars út Fréttablaðið, segir að fyrirtækið sé ekki til sölu. Hann segir jafnframt að tap síðasta árs hafi numið upp undir 600 milljónum króna.

Fréttablaðið
Auglýsing

Fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Torg tap­aði upp undir 600 millj­ónum króna á síð­asta ári, að því er fram kemur í frétt Frétta­blaðs­ins í dag. Torg gefur út Frétta­blað­ið, sem og vef­miðl­ana dv.is, eyj­an.is, press­an.is, 433.is, hring­braut.is og fretta­bla­did.­is. Fyr­ir­tækið rekur enn fremur sjón­varps­stöð­ina Hring­braut.

Helgi Magn­ús­son aðal­eig­andi Torgs segir í sam­tali við Frétta­blaðið að fyr­ir­tækið sé ekki til sölu en fjöl­miðlar hafa á und­an­förnum vikum greint frá því að boðið hafi verið í fyr­ir­tæk­ið.

Hann segir að þau hafi „fengið fyr­ir­spurnir og óform­leg til­boð í fyr­ir­tækið eða hluta þess frá nokkrum aðilum að und­an­förnu. Þeim hug­myndum hefur öllum verið svarað neit­andi og vísað frá með þeim orðum að ekk­ert sé til sölu hjá okk­ur.“

Auglýsing

Fjár­magnað með nýju hlutafé

Helgi segir við Frétta­blaðið að þeir aðilar sem rætt hafi við útgáfu­fé­lagið Torg geri sér ljóst að bjartir tímar geti verið fram undan í þessum rekstri eftir mjög erf­iða tíma vegna veiru­far­ald­urs­ins.

Tap árs­ins 2020 hafi numið upp undir 600 millj­ónum króna, eins og áður seg­ir. Hann segir að það hafi allt verið fjár­magnað með nýju hluta­fé. „Nú horfir til betri vegar eftir að veiru­vand­inn er hættur að hafa áhrif á tekju­öflun fyr­ir­tæk­is­ins og við væntum þess að hagur þess vænk­ist mjög við eðli­legar aðstæður í við­skipta­líf­in­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent