„Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi að innkalla þurfi 4.309 Yaris og Corolla bifreiðar af árgerðum 2001 til 2006. Ástæða innköllunarinnar er galli í öryggispúðum, röng hleðsla í drifbúnaði öryggispúðanna getur rifið gat á drifbúnaðinn sjálfan sem veldur því að púðinn blæs ekki rétt út við árekstur og virkni hans verður ekki eins og til er ætlast.“ Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.
Þessi innköllun er á heimsvísu og hér á landi gætu verið Toyota bílar af gerðunum Tundra og Sequoia framleiddir í Bandaríkjunum með þessari gerð af öryggispúðum, segir í frétt á vef Neytendastofu.
Innköllunin á heimsvísu er mikil að umfangi, en talið er að 34 milljónir bíla séu með galla í öryggispúðum sem framleiddir eru af fyrirtækinu Takata. Þar á meðal eru Toyota, Honda, Nissan og fleiri.
Eigendum bílanna hér á landi verða send bréf vegna þessarar innköllunar, segir á vef Neytendastofu.