Tvö þúsund króna seðillinn, sem sækir myndefni í verk Jóhannesar Kjarvals, er fallegasti seðillinn að mati þátttakenda í könnun þar um.
Á Safnanótt síðastliðinn föstudag fór fram kosning meðal þeirra sem mættu í Myntsafn Seðlabankans og Þjóðminjasafns um það hvaða peningaseðill, af þeim seðlum sem nú eru í umferð, væri fallegastur.
Starfsmenn Seðlabankans tóku einnig þátt í kosningunni. „Kosningin var spennandi og úrslitin mjög tvísýn. Alls taldi tæplega þriðjungur, eða 32% þátttakenda, að tvö þúsund króna seðillinn væri fallegasti peningaseðillinn. Álíka margir, eða 31% þátttakenda töldu að nýi tíu þúsund króna seðillinn væri fallegasti seðillinn,“ segir í frétt um kosninguna frá Seðlabanka Íslands.
Tíu þúsund króna seðillinn sækir myndefni sitt og útlit í verk Jónasar Hallgrímssonar.
Tvö þúsund króna seðillinn hefur ekki verið mjög eftirsóttur sem greiðslumiðill og hefur því verið ákveðið fyrir nokkru að taka hann úr umferð, segir í frétt seðlabankans. „Fegurð virðist ekki fara saman við gagnsemi í þessu tilviki“ segir enn fremur.
Í lok síðasta mánaðar voru 127.500 tvö þúsund króna seðlar í umferð en tæplega 1,3 milljónir tíu þúsund króna seðla. Enn eru hins vegar fimm þúsund króna seðlar flestir í umferð eða 5,5 milljónir og þar á eftir koma ríflega fjórar milljónir þúsund króna seðla.
„Þess má til gamans geta að þegar greint er á milli gesta og starfsmanna Seðlabanka Íslands sem tóku þátt í kosningunni er niðurstaðan nánast alveg eins: Tvö þúsund króna seðillinn rétt marði sigur á tíu þúsund króna seðlinum og í báðum tilvikum lenti þúsund króna seðillinn í neðsta sæti. Aðeins munaði einu atkvæði í báðum tilvikum varðandi vinsælasta seðilinn,“ segir í frétt seðlabankans.