Umboðsmaður Alþingis veitir Hönnu Birnu frest til 8. janúar

hanna-birna.png
Auglýsing

Umboðs­maður Alþingis hefur veitt Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur, fyrrum inn­an­rík­is­ráð­herra, frest til að koma á fram­færi frek­ari sjón­ar­miðum sínum vegna frum­kvæð­is­at­hug­unar sem umboðs­maður hefur unnið á sam­skiptum hennar og Stef­áns Eiríks­son­ar, fyrrum lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef umboðs­manns sem birt var í morg­un.

Ný ábend­ing barst



Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að umboðs­maður Alþingis sé búinn að  ljúka athugun sinni á ábend­ingu sem barst í nóv­em­ber í tengslum við frum­kvæð­is­at­hugun emb­ætt­is­ins á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur, frá­far­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stef­áns Eiríks­son­ar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þar segir að athugun umboðs­manns hafi falist í því að afla upp­lýs­inga vegna ábend­ing­ar­innar og fá afstöðu Hönnu Birnu til þeirra. Síð­ustu daga hefur verið unnið úr þeim og að frá­gangi á nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­un­ar­inn­ar.Nú er hins vegar ljóst að birt­ing hennar frest­ast þar til að Hanna Birna hefur komið sjón­ar­miðum sínum á fram­færi. Það þarf hún að gera fyrir 8. jan­úar næst­kom­andi.

Auglýsing

Nið­ur­staðan átti að koma í nóv­em­ber



Ekki hefur komið fram hvað felst í ábend­ing­unni sem umboðs­manni Alþingis barst í nóv­em­ber. Í til­kynn­ingu frá honum í lok nóv­em­ber kom hins vegar fram að hún teng­ist ekki sam­skiptum Gísla Freys Val­dórs­son­ar, þáver­andi aðstoð­ar­manns inn­an­rík­is­ráð­herra, og Sig­ríðar Bjarkar Guð­jóns­dótt­ur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, varð­andi perónu­legar upp­lýs­ingar um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos sem Sig­ríður Björk sendi Gísla Frey í tölvu­pósti við upp­haf leka­máls­ins. Því er ljóst að um nýjar upp­lýs­ingar var að ræða er varða aðkomu Hönnu Birnu að mál­inu.

Upp­haf­lega hugð­ist umboðs­maður Alþingis birta nið­ur­stöður sínar í lok nóv­em­ber, en dráttur varð á birt­ingu nið­ur­stöð­unnar eftir að umrædd ábend­ing barst emb­ætt­inu. Nú hefur sú birt­ing frest­ast enn leng­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None