Umferðin eykst hlutfallslega mest á Austurlandi

asbyrgi.jpg
Auglýsing

Umferð eykst mest á Þjóð­vegi 1 um Aust­ur­land séu júní­mán­uðir síð­ustu fjög­urra ára bornir sam­an. Alls staðar hefur umferðin auk­ist en minnst aukn­ing er á Þjóð­vegi 1 um Suð­ur­land.

Ef rýnt er í umferð­ar­tölur Vega­gerð­ar­innar fyrir síð­asta mánuð og þær bornar saman við sama tíma­bil i fyrra sést að umferð­ar­þungi heldur áfram að aukast á land­inu öllu eða um 4,6 pró­sent. Það er þróun sem hófst eftir að umferð náði lág­marki árið 2012, en frá 2009 til 2012 minnk­aði umferð­ar­þungi um þjóð­vegi Íslands hratt.

Nú er svo komið að umferð um Þjóð­veg 1 er orðin jafn mikil og árið 2007 þegar umferð­ar­met var sett, segir á vef Vega­gerð­ar­innar sem miðar umferð­ar­vísi­tölu sína við árið 2005. Árið 2015 stefnir nú í að verða mesta umferð­ar­árið um Þjóð­veg 1. Áhuga­vert er að bera umferð­ar­þunga um Hring­veg­inn saman við þróun vergrar lands­fram­leiðslu.

Auglýsing

Fólk fylgir veðr­inu



Inntur eftir skýr­ing­um á því hvers vegna aukn­ingin var svo mikil milli ára á Aust­ur­landi seg­ist Stefán Bogi Sveins­son, bæj­ar­full­trúi í Fljóts­dals­hér­aði, telja veðrið spila stóran þátt. Ferða­menn fylgi veðr­inu eins og Íslend­ingum hefur alltaf verið tamt í sum­ar­fr­í­um.

Ekki er hægt að full­yrða að veðrið sé ein­hver hvati til auk­ins akst­urs milli lands­hluta en merkja má ein­hverja fylgni með góðu veðri og auk­inni umferð um Aust­ur­land. Þannig var með­al­hiti á Egils­stöðum í júní 2013 tveimur gráðum yfir með­al­lagi og með hærri með­al­gildum á land­inu. Aukn­ing umferðar frá árinu áður var 18,2 pró­sent.

Sömu sögu er að segja um árið 2014 þegar með­al­hiti á Egils­stöðum var 2,5 gráðum yfir með­al­lagi í júní. Umferð um svæðið jókst þá um 16,7 pró­sent frá árinu áður.

Á vef Veð­ur­stof­unnar má lesa að veð­ur­far í júní var nokkuð leið­in­legt og hiti undir með­al­lagi síð­ustu tíu ára um land allt. Að til­tölu var þó hlýj­ast á Aust­fjörðum en mjög kalt suð­vest­an­lands og sér­stak­lega kalt á hálend­inu. Umferð jókst í takt við þetta hlut­falls­lega mest á Aust­ur­landi.

Mikil upp­bygg­ing ferða­þjón­ustu á Aust­ur­landi gæti spilað rullu, telur Stefán Bogi, enda hefur verið tölu­vert fjár­fest í þjón­ustu fyrir ferða­fólk í Fljóts­dals­hér­aði. Gisti­rýmum hefur fjölgað og út frá því spretta veit­inga­hús og annað slíkt. Mark­aðs­málin hafa jafn­framt verið tekin fast­ari tökum eystra, en Stefán Bogi segir það hins­vegar ekki endi­lega skýra neitt enda sé sam­keppnin mikil milli allra aðila ferða­þjón­ust­unn­ar.

Mýrdalsjökull Árið 2015 stefnir í að verða mesta umferð­arár í sög­unni. (Mynd: Birgir Þór)

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None