Fundur í kjaradeilu þriggja stærstu aðildarfélaga BSRB og ríkisins í dag skilaði engum árangri. Flestir félagsmenn BSRB og aðildarfélaga hafa verið með lausa samninga í rúmlega hálft ár. Að sögn aðildarfélaganna hefur ríkið ekki sýnt neinn raunverulegan vilja til að ganga frá samningum.
Frá þessu er greint á vefsíðu BSRB, en þessi þrjú stærstu aðildarfélög sem áttu fund með samninganefnd ríkisins í dag eru SFR, Sjúkraliðafélag Íslands og Landssamband lögreglumanna. „Fulltrúar þessara þriggja fjölmennustu aðildarfélaga BSRB fóru fullir bjartsýni á fund samninganefndarinnar í dag enda höfðu ráðamenn ríkissins í allan gærdag talað um góða stöðu ríkissjóðs og fjallað um aukin fjárframlög til hinna ýmsu málaflokka,“ segir í tilkynningu frá BSRB.
„Í ræðu sinni lögðu ráðherrarnir áherslu á að aðilar vinnumarkaðarins, bæði hins opinbera og almenna, stæðu saman að því að verðbólgan fari ekki aftur af stað og ógni þannig verðmætasköpun í samfélaginu. Einnig var fjallað mikið um mikilvægi þess að viðhalda stöðugleika og auka sátt í samfélaginu. Flestir félagsmenn BSRB og aðildarfélaga þess hafa nú verið með lausa samninga í rúmlega hálft ár og fram til þessa hefur samninganefnd ríkisins ekki sýnt af sér neinn raunverulegan vilja til að klára þá samninga.“
Sameiginleg samninganefnd þessara þriggja félaga hefur gert þá kröfu að komið verði til móts við ríkisstarfsmenn þeirra með sama hætti og þá hópa hópa sem hafa nýverið fengið launahækkanir með niðurstöðu gerðardóms. „Eftir fundinn í dag liggur ljóst fyrir að ríkið ætlar sér ekki að koma til móts við þessar kröfur,“ segir BSRB. Því munu formenn þessara þriggja félaga nú ráða ráðum sínum og í kjölfarið kynna næstu skref sem tekin verða í kjaradeilunni.