Ungir jafnaðarmenn hvetja Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og fráfarandi sveitarstjóra Ásahrepps, til að stíga til hliðar sem varaþingmaður Samfylkingarinnar, þar til hann nýtur aftur trausts flokksins og almennings. Þetta kemur fram í ályktun sem miðstjórn Ungra jafnarðarmanna sendi frá sér í dag.
Ályktun Ungra jafnaðarmanna:
"Ungum jafnaðarmönnum er brugðið vegna frétta sem berast af varaþingmanni Samfylkingarinnar, Björgvini G. Sigurðssyni. Björgvin fór ranglega með opinbera fjármuni í starfi sínu sem sveitarstjóri Ásahrepps og brást þar með trausti almennings.
Mikilvægt er að skattgreiðendur standi í vissu um að opinberir fjármunir séu aðeins notaðir í almannaþágu en renni ekki í vasa opinberra starfsmanna. Í því samhengi skiptir ekki máli hvort að fjármunir eigi að stoppa þar við í styttri eða lengri tíma. Í ljósi þessa hvetja Ungir jafnaðarmenn Björgvin til að stíga til hliðar sem varaþingmaður Samfylkingarinnar uns hann nýtur aftur trausts flokks síns og almennings.
Að lokum vilja Ungir jafnaðarmenn óska Björgvini góðs bata og velfarnaðar."