Bein fjármunaeign Íslendinga erlendis jókst um 42 milljarða króna á árinu 2020 og var 689,5 milljarðar króna um síðustu áramót. Frá lokum árs 2017 hefur hún aukist um 139,5 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýlegum hagtölum frá Seðlabanka Íslands.
Að uppistöðu er um eigið fé að ræða, alls 537,4 milljarðar króna, en útistandandi lán innlendra aðila til erlendra eru 152,1 milljarðar króna. Því var 78 prósent af eignum Íslendinga erlendis eigið fé. Ekki er óvarlegt að ætla að hluti þeirra lána hið minnsta sé milli tengdra aðila. Mestar eru eignirnar sem tengdar eru fjármálastarfsemi, alls 309 milljarðar króna. Af fjárfestingu innlendra aðila erlendis er tæpur helmingur í eignarhaldsfélögum.
Bein fjármunaeign innlendra aðila erlendis er órafjarri því sem hún var árið 2007, en þá áttu Íslendingar uppgefið 1.554 milljarða króna utan landsteinanna. Umfang fjármunaeignar Íslendinga erlendis um síðustu áramót var því 44 prósent af þeirri upphæð.
Fjármunaeignin óx tímabundið eftir bankahrun, aðallega vegna erlendra eigna þrotabúa föllnu bankanna, hafta á Íslandi sem komu í veg fyrir að kröfuhafar þeirra greiddu sér þær eignir út og veikrar krónu gagnvart helstu viðskiptamyntum. Í árslok 2012 stór beina fjármunaeign innlendra aðila erlendis í 1.587 milljörðum króna. Um helmingur þeirra eigna var vegna fjármálastarfsemi.
Mest í eignarhaldsfélögum í Hollandi
Mestar eru uppgefnar fjármunaeignir Íslendinga í Hollandi, en þar eiga innlendir aðilar alls tæplega 402 milljarða króna. Þær jukust um 46 milljarða króna á síðasta ári. Megnið af því fé er í eignarhaldsfélögum samkvæmt samantekt Seðlabanka Íslands.
Sá hluti fjármuna Íslendinga erlendis sem eru óflokkaðir hefur margfaldast á nokkrum árum. Í lok árs 2017 var hann metinn á tæpa 25 milljarða króna en um síðustu áramót var sú upphæð komin upp í 76,5 milljarða króna.
Óflokkað stækkar
Eignir Íslendingar í krónum talið lækkuðu skarpt á í útlöndum frá árunum 2016 og 2017. Þar spilaði mikil styrking íslensku krónunnar stóra rullu. Í lok árs 2017 hafði fjármunaeign innlendra aðila í krónum talið ekki verið lægri frá árinu 2004.
Síðustu ára hefur þetta breyst og á tveggja ára tímabili, frá lokum árs 2017 og fram til lok árs 2019, jukust eignirnar í krónum talið um 97 milljarða króna. Það gerðist á sama tíma og íslenska krónan veiktist umtalsvert, og jók þannig krónuvirði helstu viðskiptagjaldmiðla.
Krónan veiktist skarpt árinu 2020 og hver evra kostaði 14,9 prósent meira í lok þess árs en í byrjun. Í ár hefur hún á móti styrkst um 5,2 prósent.
Skráningu á erlendri fjármunaeign Íslendinga var breytt fyrir nokkrum árum síðan. Nú eru gefnar upplýsingar um eign í færri löndum en áður en flokkurinn „óflokkað“ hefur stækkað. Áður var hægt að sjá til að mynda hver bein fjármunaeign Íslendinga er á Cayman-eyjum, Mön, Jersey, Guernsey og Máritíus. Það er ekki hægt lengur.
Líkt og áður sagði var „óflokkuð“ bein fjármunaeign Íslendinga rúmlega 76,5 milljarðar króna í lok árs 2020.
Íslendingar voru stórnotendur skattaskjóla
Erlend fjármunaeign Íslendinga var mjög í kastljósi heimsins vorið 2016 í kjölfar frétta úr gagnaleka frá panömsku lögfræðistofunni Mossack Fonseca sem gerður var opinber í apríl 2016.
Í þeim kom fram að um 600 Íslendingar tengdust um 800 aflandsfélögum sem koma fram í skjölunum. Fyrir liggur að mestu er um að ræða viðskiptavini Landsbanka Íslands sem stunduðu aflandsviðskipti. Ekki liggur fyrir hvaða milligönguliði Kaupþing og Glitnir notuðu, en samkvæmt viðmælendum Kjarnans sem þekktu vel til í starfsemi íslensku bankanna fyrir hrun er ljóst að fjöldi aflandsfélaga sem stofnuð voru fyrir íslenska viðskiptavini eru mörg þúsund talsins. Því sýndi lekinn frá Mossack Fonseca ekki nema brot af þeim aflandsfélögum sem þeir áttu, og eiga mögulega enn. Enn sem komið er hafa ekki komið fram upplýsingar um Íslendinga í nýjum leka, hinum svokölluðu Pandora-skjölum, en samstarfsaðilar alþjóðasamtaka rannsóknarblaðamanna (ICIJ) hérlendis, Reykjavik Media og Stundin, hafa boðað birtingu úr þeim gögnum á föstudag.
Líklegt verður að teljast, að hluti þeirra eigna sem íslenskir ríkisborgarar hafa komið fyrir í þekktum skattaskjólum, séu ekki inni í þeim tölum yfir erlendar fjármunaeignir innlendra aðila sem Seðlabankinn birtir. Tilgangur þess að stofna félag í skattaskjóli er enda fyrst og síðast talinn annar af tveimur: að komast undan skattgreiðslum eða til að leyna tilvist eignar frá einhverjum.
Haustið 2019 hafði embætti skattrannsóknarstjóra, sem er ekki lengur til sem sjálfstæð stofnun, lokið rannsókn í alls 96 málum sem eiga uppruna sinn í Panamaskjölunum. Af þeim höfðu alls 64 málum verið vísað til refsimeðferðar hjá héraðssaksóknara, farið hafði verið fram á sektarkröfu fyrir yfirskattanefnd í 17 málum, refsimeðferð í tveimur málum var lokið með sektargerð hjá skattrannsóknarstjóra og ekki var hlutast til um refsimeðferð í 13 málum.