Upplýsingar Hreiðars Más um Seðlabankalán ekki nýjar af nálinni

14084969012-548a854be2-z.jpg
Auglýsing

Frétta­blað­ið slær upp á for­síðu sinni frétt í dag, þar sem haft er eftir Hreið­ari Má Sig­urðs­syni fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, að bank­inn hafi fengið 85 millj­arða króna þrauta­vara­lánið frá Seðla­banka Íslands 6. októ­ber 2008, án þess að gengið hafi verið frá veð­inu í danska FIH-­bank­ann eða lána­skjöl­um. Þessar upp­lýs­ing­ar, um fyr­ir­komu­lag lán­veit­ing­ar­inn­ar, hafa legið fyrir í skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar frá 20. febr­úar 2013.

Nokkru áður hafði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri veitt nefnd­inni upp­lýs­ingar um að verk­lags­reglur bank­ans hafi verið brotnar við lán­veit­ing­una og einu gögnin sem til séu um hana sé frægt sím­tal Geirs H. Haar­de, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Dav­íðs Odds­son­ar, þáver­andi seðla­banka­stjóra, sama dag og lánið var veitt. Lánið til Kaup­þings var án skil­yrða og veitt gegn veði í danska bank­anum FIH, sem var án veð­banda og kvaða­laust.

Þá segir í skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar frá 20. febr­úar á síð­asta ári: "Ekki var gengið frá skrif­legum láns­samn­ingi á þessum degi, en kjörin á lán­inu voru að öðru leyti ákveðin þessi: Dag­setn­ing við­skipta 6. októ­ber 2008, láns­tími í dögum fjór­ir, nafn­vextir 9,40%. [...] Láns­samn­ing­ur­inn átti að fylgja í kjöl­far­ið, en vegna þeirrar atburða­rásar sem fór af stað eftir setn­ingu neyð­ar­lag­anna var hann aldrei gerð­ur."

Auglýsing

Þá kemur fram í fyrr­greindri skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar að ekki hafi verið gerð sér­stök banka­stjóra­sam­þykkt vegna lán­veit­ing­ar­inn­ar. Í svari Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra, um hvort ekki hafi verið farið að verk­lags­reglum Seðla­bank­ans um þrauta­vara­lán við lán­veit­ing­una, seg­ir: "Þegar reglur um verk­lag í neyð­ar­á­standi eru samdar liggur ekki fyrir hvernig aðstæður munu raun­veru­lega vera þegar á reyn­ir. Aðstæður þann 6. októ­ber voru með þeim hætti að eng­inn tími var til að fylgja verk­lags­regl­unum form­lega eft­ir. Öll með­ferð máls­ins og ákvarð­ana­taka var hjá æðstu stjórn bank­ans. Öll áhersla var lögð á að tryggja rétt­ar­stöðu Seðla­bank­ans með því að veð­setn­ing tæk­ist. […] Lán­taka Kaup­þings þ. 6. októ­ber 2008 bar ákaf­lega brátt að og því vannst ekki tími til að kanna hver staða Seðla­bank­ans væri varð­andi fulln­ustu á veð­inu, þ.e. að ganga að hlutafé bank­ans, enda var lánið veitt til að vinna bug á lausa­fjár­erf­ið­leikum og það átti að end­ur­greiða 4 dögum síð­ar. Það má telj­ast ólík­legt að FIH bank­inn hefði veitt Seðla­bank­anum aðgang að lána­samn­ingum sínum við fram­kvæmd vegna trún­aðar við lán­veit­endur sína.

Með lán­veit­ing­unni var stærsta hluta gjald­eyr­is­vara­forða Íslands á þeim tíma ráð­stafað til Kaup­þings, en bank­inn var yfir­tek­inn af Fjár­mála­eft­ir­lit­inu þremur dögum síð­ar, eða þann 9. októer 2008. Tap íslenskra skatt­greið­enda vegna lán­veit­ing­ar­innar nemur 35 millj­örðum króna.

Undir skýrslu fjár­laga­nefndar frá 20. febr­úar 2013 rita þing­menn­irnir Björn Valur Gísla­son, sem var jafn­framt for­maður nefnd­ar­inn­ar, Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, Val­gerður Bjarna­dótt­ir, Lúð­vík Geirs­son og Hösk­uldur Þór­halls­son.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None