Utanríkisráðherrar NATO-rikjanna fordæma aðgerðir Rússa í Úkraínu

15307116974-0ddde116b2-z.jpg
Auglýsing

Utan­rík­is­ráð­herrar NATO-­ríkj­anna for­dæma ógn Rúss­lands við stöð­ug­leika í aust­ur­hluta Úkra­ínu, sem þeir segja að sé í trássi við alþjóða­lög. Þessi ógn felur í sér að aðskiln­að­ar­sinnar í Ukra­ínu fá ýmis vopn og annan búnað frá Rússum í trássi við sam­komu­lag sem deilu­að­ilar á svæð­inu féllust á í Minsk í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. Utan­rík­is­ráð­herr­arnir for­dæma einnig hern­að­ar­upp­bygg­ingu Rússa á Krím­skaga og við Svarta hafið og kalla eftir því að rúss­nesk stjór­völd virði sjálf­stæði og full­veldi Úkra­ínu. Þetta er meðal þess sem kom fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu utan­rík­is­ráð­herr­anna 28 eftir að fundi þeirra vegna stöð­unnar í Úkra­ínu lauk rétt í þessu. Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, situr fund­inn.

„Við köllum eftir því að Rúss­land snúi við hinni ólög­legu inn­limun Krím­skag­ans, sem við höfum ekki og munum ekki við­ur­kenna,“ sagði Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, þegar hann ávarp­aði frétta­menn eftir að fund­inum lauk.

Utanríkisráðherrar allra NATO ríkjanna eru samankomnir í Brussel. Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra Íslands, sést hér lengst til hægri á myndinni sem var tekin í morgun. Utan­rík­is­ráð­herrar allra NATO ríkj­anna eru sam­an­komnir í Brus­sel. Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, sést hér lengst til hægri á mynd­inni sem var tekin í morg­un­.

Auglýsing

Sjálf­stæð, full­valda og stöðug Úkra­ína



Ut­an­rík­is­ráð­herrar allra NATO-rikj­anna 28 eru staddir í höf­uð­stöðvum NATO í Brus­sel í dag og á morgun til að funda um ýmis verk­efni banda­lags­ins. Í morgun var fundað um ástandið í Úkra­ínu, aðgerðir Rússa þar og hver afstaða NATO til ástands­ins sé. Pavlo Klim­kin, utan­rík­is­ráð­herra Úkra­ínu, átti upp­haf­lega að vera við­staddur fund­inn í morgun en komst ekki í dag þar sem að búist er við að úkra­ínska þingið stað­festi nýja rík­is­stjórn síðar í dag. Klim­kin tók því þátt í fund­ar­höld­unum í gegnum fjar­skipta­bún­að.

Nið­ur­staða fund­ar­ins var sú að NATO stað­festir for­dæm­ingu sína á aðgerðum Rússa í Ukra­ínu og stuðn­ing sinn við stjórn­völd í land­inu.

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á meðal fundarmanna. John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, er á meðal fund­ar­manna.

Stol­ten­berg var brúna­þungur en ákveð­inn þegar hann sagði að NATO „ár­rétti að sjálf­stæð, full­valda og stöðug Úkra­ína, sem stað­fast­lega styður lýð­ræði og rétt­ar­ríki, er lyk­ill­inn að öryggi á Evr­ópu-Atl­ans­hafs­svæð­in­u[...]­sem Úkra­ína er órjúf­an­legur hluti af.“

NATO hefur sett upp fimm sjóði til að styðja stjórn­völd í Úkra­ínu í þeim átökum sem þar geisa. Í gegnum þessa sjóði veitir NATO stuðn­ing við úkra­ínska her­inn án þess að taka beinan þátt í átök­un­um.

Evr­ópu­sam­bandið og Banda­ríkin hafa beitt Rússa efna­hags­þving­unum vegna aðgerða þeirra í Úkra­ínu. Þær aðgerð­ir, ásamt hríð­lækk­andi olíu­verði í heim­in­um, hafa haft miklar efna­hags­legar afleið­ingar í Rúss­landi.

Utan­rík­is­ráð­herra Úkra­ínu var fjar­ver­andi vegna þess að rík­is­stjórn Úkra­ínu, sem mynduð er eftir kosn­ing­arnar í októ­ber, verður lík­lega stað­fest á eft­ir.

 

Þórður Snær Júl­í­us­son skrifar frá höf­uð­stöðvum NATO í Brus­sel.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None