Útgerðarmenn gerðu grein fyrir miklum áhyggjum

makríll-muynd.jpg
Auglýsing

Útgerð­ar­menn gerðu grein fyrir miklum áhyggjum sínum af því ef Rússar munu loka á inn­flutn­ing frá Íslandi á fundi með Gunn­ari Braga Sveins­syni utan­rík­is­ráð­herra í gær. Á fund­inum voru yfir tutt­ugu manns, full­trúar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, LÍÚ og utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Orðrómur þess efnis hefur verið á sveimi á mörk­uðum í Rúss­landi, og hafa fisk­kaup­endur í Rúss­landi þegar dregið sig úr við­skiptum vegna þessa, en Hjörtur Gísla­son, fram­kvæmda­stjóra Ögur­vík­ur, stað­festi það í gær.

Engar form­legar til­kynn­ingar hafa borist enn um að Rússar ætli sér að breyta afstöðu sinni hvað Ísland varð­ar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Ísland getur flutt vörur til Rúss­lands, vand­kvæða­lít­ið, en miklir hags­munir eru í húfi, ekki síst um þessar mund­ir. Um 20 millj­arða við­skipti voru við Rúss­land í fyrra, þar af 18 millj­arðar vegna sölu á mak­ríl­af­urð­um. Haustin eru mik­il­vægur tími þegar mak­ríl­við­skipti eru ann­ars vegar og því eru margir útgerð­ar­menn ugg­andi yfir því ef lok­ast á við­skiptin við Ísland. Um 47 pró­sent af öllum mak­ríl sem seldur er héðan fer á Rúss­lands­mark­að.

Auglýsing

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem íslenskir útgerð­ar­menn hafa feng­ið, og ræddar voru á fund­inum í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, þá getur ákvörðun um lokun á við­skiptum komið fram svo til fyr­ir­vara­laust. Þegar til­kynnt var um inn­flutn­ings­bann­ið, 23. júní síð­ast­lið­inn, þá fengu Norð­menn mjög lít­inn fyr­ir­vara um það, sem olli miklu tjóni, bæði fyrir kaup­endur og selj­end­ur, þar sem mis­jafnt er hvernig staðið er að upp­gjöri á slíkum við­skipt­um.

Hinn 15. októ­ber birti Evr­ópu­ráð­ið til­kynn­ingu, um að Ísland, Makedón­ía, Svart­fjalla­land, Alban­ía, Liechten­stein, Nor­eg­ur, auk Úkra­ínu og Georg­íu,stilltu sér upp með Evr­ópu­sam­bands­ríkj­um, með ákvörðun frá 23. júní, um hertar við­skipta­þvin­gangir gegn Rúss­um. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans fór þetta illa í Rússa sem hafa hug á því að loka á við­skipti við þessi ríki, eða í það minnsta bregð­ast við með aðgerð­um. Eins og áður segir liggur þó engin form­leg ákvörðun um það fyrir enn­þá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None