Útgerðin hefur hagnast um áttatíu milljarða króna frá árinu 2009

Sk.laberg9-183414766.jpg
Auglýsing

Útgerðir smá­báta og fiski­skipa á Íslandi hafa hagn­ast um hátt í átta­tíu millj­arða króna á síð­ast­liðnum fimm árum, eða frá árinu 2009. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Credit­info tók saman að beiðni Kjarn­ans,  en töl­urnar eru unnar upp úr árs­reikn­ingum útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna. Enn eiga þó nokkur hund­ruð útgerð­ar­fyr­ir­tæki, eftir að skila árs­reikn­ingum fyrir árið 2013 og því er við­búið að talan eigi eftir að hækka enn frek­ar. Frestur til að skila inn árs­reikn­ingum rann út 31. ágúst síð­ast­lið­inn.

"Ókeypis" mak­ríl­veiðar hafa sitt að segja



Árið 2009 nam hagn­aður útgerð­ar­innar röskum 4,5 millj­örðum króna miðað við fyr­ir­liggj­andi árseikn­inga þeirra ríf­lega eitt þús­und útgerð­ar­fyr­ir­tækja sem skil­uðu árs­reikn­ingum það ár. Árið á eftir nam hagn­aður umræddra félaga rúmum fjórtán millj­örðum króna, en árið 2011 tók hagn­að­ur­inn mikið stökk upp á við og nam rúm­lega 28,5 millj­örðum króna. Stökkið má að miklu leyti þakka mak­ríl­veiðum Íslend­inga, sem útgerðin sinnir end­ur­gjalds­laust, þ.e. hefur ekki greitt krónu fyrir afla­heim­ild­irn­ar.

Hagn­aður útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna nam tæpum 16 millj­örðum króna árið 2012, og í fyrra hljóð­aði hagn­aður fyr­ir­tækj­anna upp á röska 15 millj­arða króna. Sem fyrr er athygli vakin á því að hátt í helm­ingur útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna sem um ræðir á enn eftir að skila árs­reikn­ingum fyrir árið 2013, eða um fimm hund­ruð fyr­ir­tæki.

Heild­ar­eignir og eigið fé hækkar sam­hliða



Á umræddu tíma­bili, það er frá árinu 2009, hafa heild­ar­eignir félag­anna sem um ræðir sömu­leiðis hækk­að. Heild­ar­eignir eru eignir að frá­dregnum skuld­um. Í lok árs 2009 námu heild­ar­eignir útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna ríf­lega 198 millj­örðum króna, tæpum 204 millj­örðum árið á eft­ir, tæpum 222 millj­örðum árið 2011, röskum 203 millj­örðum árið 2012 og miðað við fyr­ir­liggj­andi árs­reikn­inga sem þeg­ar hafa borist, námu eignir útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna tæpum 88 millj­örðum króna í fyrra.

Til marks um hversu skuld­settur geir­inn var við banka­hrun­ið, var eigið fé útgerð­ar­fé­lag­anna nei­kvætt um ríf­lega 22,7 millj­arða í árs­lok 2009. Tveimur árum síð­ar­ var eigið fé félag­anna komið ríf­lega 31 millj­arð króna réttum megin við núllið, en árið 2012 nam eigið fé útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna tæpum 37 millj­örðum króna. Sam­kvæmt árs­reikn­ingum þeirra útgerð­ar­fyr­ir­tækja sem skilað hafa inn árs­reikn­ingi fyrir árið í fyrra, nam eigið fé þeirra í lok árs, tæpum 19 millj­örðum króna.

Auglýsing

Veiði­gjöld lækka um 1,8 millj­arða á milli ára



Til sam­an­burðar má nefna að miðað við fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, er gert ráð fyrir tæpum 44,9 millj­örðum króna til rekst­urs Land­spít­al­ans á næsta ári. Í sama fjár­laga­frum­varpi lækka veiði­gjöld á útgerð­ina um 1,8 millj­arða króna á næsta ári. Þá er áætlað að þau verði um átta millj­arðar króna, en gjaldið skilar um 9,8 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann á þessu ári.

Rík­is­stjórnin réðst í breyt­ingar á veiði­leyfagjöldum sum­arið 2013 með það fyrir augum að lækka það, þrátt fyrir mylj­andi hagnað í grein­inni. Ákvörð­unin var gagn­rýnd og Jón Steins­son, dós­ent í hag­fræði við Col­umbi­a-há­skóla í New York, hefur sagt að engin hag­fræði­leg rök séu fyrir lækk­un­inni.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None