Útgjöld vegna barnabóta lækka

Ekki er gert ráð fyrir auknum útgjöldum ríkisins til barnabóta á næsta ári, þrátt fyrir að fjárhæðir þeirra til hvers einstaklings hækki og skerðingarmörk verði færð ofar. Áætluð útgjöld eru 11 prósentum minni en þau voru í fyrra.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið sitt fyrir næsta ár í gær.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið sitt fyrir næsta ár í gær.
Auglýsing

Heild­ar­út­gjöld hins opin­bera í barna­bætur nema tæp­lega 14 millj­örðum króna, en það er 11 pró­sentum minna en útgjöldin sem runnu í mála­flokk­inn í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtu fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Minna greitt út þrátt fyrir hækkun greiðslna á mann

Í kynn­ingu sinni á fjár­laga­frum­varp­inu fyrr í dag sagð­ist Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra ætla að leggja til að greiðslur hvers og eins bóta­þega verði hækk­aðar á næsta ári, auk þess sem tekju­skerð­ing­ar­mörkin verði hærri. Gangi þessar breyt­ingar í gegn fengi ein­stætt for­eldri með 375 þús­und á mán­uði í launa­tekjur rúmar 82 þús­und króna á mán­uði í barna­bæt­ur, í stað rúmra 75 þús­unda króna sem það fengi miðað við núver­andi kerfi.

Þrátt fyrir þessar breyt­ingar er ekki búist við að rík­is­sjóður muni verja meiri fjár­munum í mála­flokk­inn, en gert er ráð fyrir að heild­ar­greiðsla barna­bóta muni nema 13,965 millj­örðum króna á næsta ári. Þetta er nákvæm­lega sama upp­hæð og var sett í mála­flokk­inn í ár, sam­kvæmt núgild­andi fjár­lög­um.

Auglýsing

Sam­kvæmt tekju­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er hins vegar búist við að rík­is­sjóður muni alls greiða rúma 15 millj­arða króna í barna­bætur í ár, en heild­ar­greiðsl­urnar námu 15,8 millj­örðum króna í ár. Verði barna­bóta­greiðsl­urnar á næsta ári því í sam­ræmi við fjár­laga­frum­varpið munu þær því verða 11 pró­sentum lægri en þær voru árið 2020.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent