Útilokað að ná þjóðarsátt um stöðugleika án ríkisstjórnarinnar

A121425-1.jpg
Auglýsing

Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, segir það aug­ljóst að þeir sem sömdu um lágar launa­hækk­anir síð­ast, á grund­velli stöð­ug­leika, telji sig eiga inni leið­rétt­ingu gagn­vart "því sem síðar gerð­is­t". Þar vísar Gyfi í launa­hækk­anir stétta eins og kenn­ara og lækna, sem fengu mun hærri launa­hækk­anir en flestar aðrar stéttir höfðu samið um. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Gylfi var líka gestur Sig­ur­jóns M. Egils­sonar í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í gær. Þar sagði hann að úti­lokað væri að ná þjóð­ar­sátt um stöð­ug­leika og hóf­legar launa­hækk­anir á meðan að rík­is­stjórnin ham­að­ist á vel­ferð­ar­kerf­inu.

Rík­is­stjórn­ar­innar að skapa þjóð­ar­sátt



Í sam­tali við Morg­un­blaðið sagði Gylfi það fyrst og fremst í höndum rík­is­stjórn­ar­innar að búa til aðstæður þar sem þjóð­ar­sátt gæti skap­ast. Til þess að hægt yrði að gera almenna kjara­samn­inga á Íslandi sem stæð­ust sam­an­burð við  kjara­samn­inga launa­fólks ann­ars staðar á Norð­ur­löndum þyrfti æði margt að ger­ast, t.d. meiri tekju­jöfnun í gegnum skatt­kerf­ið, sem sé mun minni hér­lendis en í nágranna­lönd­un­um. Lækka þyrfti skatt­byrði á launa­lága og tekju- og efna­meiri þyrftu að leggja meira til sam­fé­lags­ins.

Auk þess þyrfti að end­ur­skoða gjald­töku í heil­brigð­is­kerf­inu, krefj­ast aðgerða í hús­næð­is­málum og koma í veg fyrir að nið­ur­skurður í mennta­kerf­inu kæmi illa við launa­fólk sem þyrfti á end­ur­menntun vegna breyttra aðstæðna á vinnu­mark­aði.

Auglýsing

Gylfi seg­ist aldrei hafa velkst í vafa um að það sé á for­ræði rík­is­stjórn­ar­innar að afgreiða þessi mál. "Hún fékk í með­gjöf vilja vinnu­mark­að­ar­ins, bæði atvinnu­rek­enda og verka­lýðs­hreyf­ing­ar, til að vinna með henni. Rík­is­stjórnin hefur spilað þannig úr málum að bæði sam­tök atvinnu­rek­enda og verka­lýðs­hreyf­ingar hafa sagt: Þetta gengur ekki. Stefna rík­is­stjórn­ar­innar er ekki í neinu sam­hengi við að hér sé hægt að þroska og fóstra ein­hvern stöð­ug­leika."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None