Væntingavísitala Gallups lækkaði um 17 stig í aprílmánuði og mælist nú 84,3 stig. Lækkunin er sú mesta á vísitölunni milli mánaða í tæp tvö ár. Vísitalan fór yfir 100 stig í mars síðastliðnum en vísitalan er mæld á bilinu 0 til 200 stigug, þar sem gildið 100 þýðir að jafnmargir aðspurðra neytenda eru bjartsýnir og svartsýnir á stöðu og horfir í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Greining Íslandsbanka greinir frá lækkun vísitölunnar í dag.
„Í raun kemur það okkur ekki á óvart að VVG [væntingavísitala Gallup] lækki á milli mars og apríl. Hins vegar er lækkunin að þessu sinni töluvert meiri en við höfðum vænst. Við teljum afar líklegt að fréttaflutningar af kjaradeilum og yfirvofandi verkföllum hafi átt stóran þátt í lækkun VVG nú í apríl, en miðað við það virðist ekki gæta mikillar samstöðu eða bjartsýni á meðal aðila sem þar koma að borði,“ segir í Morgunkorni greiningardeildar bankans.
Útlit fyrir bættan hag
Þótt gildi vísitölunnar hafi lækkað mikið milli mánaða í apríl þá stendur hún hærra en fyrir ári síðan, þegar hún mældist 82,7 stig. Greining Íslandsbanka spáir því að vísitalan fari hækkandi. Fjölmörg teikn séu á lofti um að hagur neytenda fari áfram batnandi.
„Við teljum mjög líklegt að væntingar íslenskra neytenda komi áfram til með að sigla upp á við næstu misserin, og að vísitalan muni jafnvel oftar en ekki að mælast yfir 100 stigunum það sem eftir lifir árs. Fjölmörg teikn eru á lofti um að hagur neytenda fari áfram batnandi, auk þess sem efnahagshorfur eru allgóðar fyrir næstu misserin. Þannig benda tölur af vinnumarkaði til þess að rífandi gangur sé í honum nú í upphafi árs, og hefur staðan þar ekki hafa verið betri í sjö ár. Samkvæmt tölum Hagstofunnar fjölgaði heildarvinnustundum í hagkerfinu um 4,2% á fyrsta ársfjórðungi, sem má má nánast að öllu leyti rekja til fjölgunar starfandi fremur en lengri vinnutíma hjá hverjum og einum. Þróun heildarvinnustunda gefur ágætis vísbendingu um umsvifin í hagkerfinu á hverjum tíma, og skv. þeim virðist því árið fara kröftuglega af stað. Jafnframt hefur kaupmáttur launa verið að aukast nokkuð hratt, og rímar það ágætlega við tölur frá eftirspurnarhlið hagkerfisins sem benda til þess að einkaneysluvöxtur gæti orðið nokkuð myndarlegur á árinu. Er útlitið þar með hið ágætasta, að því gefnu að sumarið reynist þokkalega snjólétt.“