„Niðurstöður könnunarinnar í maí gefa til kynna að verðbólguvæntingar markaðsaðila til skamms tíma litið hafi hækkað töluvert frá janúarkönnun bankans en að langtímavæntingar hafa lítið breyst,“ segir í frétt á vef Seðlabanka Íslands, um niðurstöður könnunar bankans þar sem verðbólguvæntingar voru kannaðar.
Könnun á væntingum markaðsaðila var framkvæmd dagana 4.-6. maí sl. Leitað var til 33 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör fengust frá 19 aðilum og var svarhlutfallið því 58%, að því er segir í frétt seðlabankans.
Miðað við miðgildi svara í könnuninni virðast þeir vænta um 1,5 prósent verðbólgu á öðrum fjórðungi þessa árs og 1,6% á þriðja fjórðungi sem er um 0,1-0,5 prósentum meiri verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í síðustu könnun í janúar.
Könnunin bendir einnig til þess að væntingar þeirra til verðbólgu eftir eitt ár hafi hækkað um tæplega 1 prósentu, í 3,5 prósent. Væntingar þeirra um ársverðbólgu eftir tvö ár voru hins vegar óbreyttar í þremur prósentum. Væntingar um verðbólgu að meðaltali næstu fimm ár og tíu ár hafa hækkað um 0,2 prósentur milli kannana og eru nú 3,2 prósent. Þá gefur könnunin til kynna að markaðsaðilar vænta þess að gengi evru verði 150 krónur eftir eitt ár sem er svipað og í síðustu könnun bankans.
Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að veðlánavextir bankans verði hækkaðir um 0,5 prósentur á þriðja fjórðungi þessa árs og um 0,25 prósentur til viðbótar á fyrsta fjórðungi þess næsta, í 6 prósent. Það eru 0,75 prósentum hærri vextir en þeir væntu í janúarkönnun bankans. Þegar könnunin var framkvæmd töldu um 60% svarenda taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt sem er talsvert hærra en í janúar þegar um 20% svarenda töldu svo vera. Á sama tímabili hefur hlutfall þeirra sem töldu taumhaldið of þétt eða alltof þétt lækkað um rúmlega 45 prósentur, í tæplega 30%, segir í frétt seðlabankans.