Verðmæti fiskafla í janúar var 21,3 prósent hærra en í janúar 2014. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Vegur þar þyngst aukið verðmæti uppsjávarafla sem nam tæpum 2,5 milljörðum króna samanborið við um 900 milljónum í janúar 2014. Aflaverðmæti botnfisks jókst einnig á milli ára um rúm fjögur prósent.
Aflaverðmæti á 12 mánaða tímabili frá febrúar 2014 – janúar 2015 dróst saman um 8,5 prósent miðað við sama tímabil ári fyrr. Á þessu tímabili hefur aflaverðmæti flestra tegunda dregist saman en þó varð aukning í verðmæti þorskafla um rúm tíu prósent.