Við frekari sölu Íslandsbanka þurfi að meta hvað jafnræði og gagnsæi megi kosta

Fjármála- og efnahagsráðherra sat fyrir svörum á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins í morgun. Hann sagðist telja útilokað að ríkisstjórnin notaðist aftur við tilboðsfyrirkomulag við sölu á hlut í Íslandsbanka.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í dag. Mynd úr safni.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í dag. Mynd úr safni.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að við áfram­hald­andi sölu á Íslands­banka þurfi hann, rík­is­stjórnin og eftir atvikum Alþingi „að gera það upp við sig hvers virði það er að leggja aukna áherslu á gagn­sæi og jafn­ræði og hvort það sé svo mik­ils virði að hægt sé að sætta sig við eitt­hvað lægra verð þegar fram í sækir“.

Ráð­herra vék að því að lengri und­ir­bún­ings­tími sölu með almennu útboði á mark­aði gæti haft ófyr­ir­séð áhrif á verð bréfa og leitt til þess að ríkið fengið minna en ella fyrir eft­ir­stand­andi hlut sinn í bank­an­um.

Hann sagð­ist telja úti­lokað að sú rík­is­stjórn sem nú situr muni not­ast við til­boðs­fyr­ir­komu­lag eins og notað var við seinna útboðið í Íslands­banka fyrr á þessu ári, vegna galla sem því fylgi, „ekki síst í svona smáu sam­fé­lagi eins og við búum í“.

Jafn­ræðið „veikur blett­ur“ á útboð­inu

Í því sam­hengi vís­aði Bjarni, sem sat fyrir svörum á fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í morg­un, til þess að ekki hefði tek­ist að tryggja fullt jafn­ræði. Kall­aði hann það „veikan blett“ á útboð­inu og að tryggja hefði mátt betur að allir sölu­ráð­gjafar væru að beita sömu aðferða­fræði til að hlaupa áhuga­sömum kaup­endum að ferl­inu.

Þannig hafi umræða verið á þann veg að sumir hafi verið hvattir til að taka þátt, á meðan aðrir hafi þurft að sýna frum­kvæði. „Þetta truflar mann aðeins þetta með jafn­ræð­ið,“ sagði Bjarni, sem þó sagði til­boðs­fyr­ir­komu­lagið hafa marga aug­ljósa kosti. Með því hefði tek­ist að selja stóran hlut í bank­anum á verði sem hann telji mjög ásætt­an­legt.

Auglýsing

Bjarni var spurður um það hvort stefnt væri að frek­ari sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka á næsta ári og svar­aði því til að hann vildi ekki svara til um það, þó að hans vilji stæði til þess að svo yrði. Einnig sagði hann það alrangt að for­sendur fjár­laga árs­ins 2023 væru í upp­námi ef sala á eign­ar­hlutnum færi ekki fram þá. Eign rík­is­ins í Íslands­banka myndi ekki hverfa, þrátt fyrir að salan færi ekki fram á næsta ári og skulda­staða rík­is­ins væri mun betri en fyrri áætl­anir gerðu ráð fyr­ir.

Spurður um það hvaða ein­ing myndi taka við hlut­verki Banka­sýslu rík­is­ins, sem rík­is­stjórnin hefur ákveðið að leggja nið­ur, sagði Bjarni að hann sæi fyrir sér að eign­ar­hlutir rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum myndu renna inn í stofnun sem héldi á öðrum eign­ar­hlutum rík­is­ins, en ræddi þessar hug­myndir þó ekki í smá­at­rið­um.

Tekur ekki undir gagn­rýni Banka­sýslu á Rík­is­end­ur­skoðun

Bjarni var einnig spurður hvernig hann horfði á þau ummæli sem for­svars­menn Banka­sýsl­unnar hefðu haft um Rík­is­end­ur­skoðun frá því að skýrslan kom út, sem Þór­unn Svein­bjarn­ar­dóttir for­maður nefnd­ar­innar sagði að hefðu slegið sig illa.

Bjarni sagði að þarna vís­aði þing­mað­ur­inn vænt­an­lega til ummæla sem lýstu ein­hverjum efa um að Rík­is­end­ur­skoðun hefði verið full­bær til að tjá sig um öll þau atriði sem voru til umfjöll­unar í skýrsl­unni.

„Við getum ekki tekið undir þetta,“ sagði Bjarni og sagði ráðu­neytið hafa verið í mjög fag­mann­legum sam­skiptum við Rík­is­end­ur­skoðun og að það teldi enga ástæðu til að draga í efa hæfni eða færni Rík­is­end­ur­skoð­unar til að tjá sig um efni máls­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent