„Ég verð að segja og get tekið undir það að ríkisstjórnin hefur að mörgu leyti brugðist gagnvart því að hafa umræðuna meira um afleiðingarnar af takmörkunum, hvernig á að bregðast við.“
Þetta sagði Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag.
Hóf hann ræðu sína á því að segjast vilja gera að umtalsefni mikilvægi þess – sérstaklega í lýðræðislegu tilliti – að hér á landi fari fram opin og hreinskiptin umræða um stöðu samfélagsins í COVID-faraldrinum og hvernig Íslendingar tækjust á við hann.
„Þurfum að þora að taka þessa umræðu“
„Þá þurfum við að þora að taka umræðuna frá mörgum sjónarhornum, sem mér finnst hafa, eftir bráðum tveggja ára veru í faraldrinum, einskorðast svolítið bara við sóttvarnasjónarmið. Maður finnur það bara almennt í samfélaginu að það er svolítið verið að stíga inn á hættulega braut með því að fara að gagnrýna eitthvað, að spyrja spurninga. En við verðum, við verðum bara að taka þessa umræðu,“ sagði Vilhjálmur.
Þá beindi hann jafnframt máli sínu að eftirköstum takmarkana stjórnvalda í faraldrinum. „Af því að umræðan snýst svolítið mikið um atvinnurekendur og hvernig við eigum að halda atvinnulífinu gangandi – jú, til að fólk haldi störfunum? Það er nefnilega málið. Það er töluvert af fólki sem er þá kannski frekar á lágum launum sem hefur fallið úr starfi og þarf virknistuðning til að komast aftur til starfa en hefur kannski bara verið með 70 til 80 prósent laun síðustu tvö árin og hafði þó ekki miklar tekjur fyrir.“
Spurði Vilhjálmur hvaða félagsleg og andleg áhrif þetta hefði og hvernig stjórnvöld ætluðu að takast á við ástandið.
„Og líka bara spurningar eins og læknar eru byrjaðir að spyrja núna: Er betra að nýta starfsfólkið í að þjónusta í heilbrigðiskerfinu eða að taka sýni og annað slíkt? Er betra að nota fjármunina í að byggja upp heilbrigðiskerfið, í geðheilbrigðismálum, annað en að nota þá í þessar víðtæku skimanir? Við þurfum að þora að taka þessa umræðu, fjölmiðlar, alþingismenn og samfélagið allt,“ sagði hann að lokum.