„Við verðum bara að taka þessa umræðu“

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins tekur undir þá gagnrýni að ríkisstjórnin hafi „að mörgu leyti brugðist“ og vill hann hafa meiri umræðu m.a. um afleiðingarnar af takmörkunum í faraldrinum.

Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

„Ég verð að segja og get tekið undir það að rík­is­stjórnin hefur að mörgu leyti brugð­ist gagn­vart því að hafa umræð­una meira um afleið­ing­arnar af tak­mörk­un­um, hvernig á að bregð­ast við.“

Þetta sagði Vil­hjálmur Árna­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hóf hann ræðu sína á því að segj­ast vilja gera að umtals­efni mik­il­vægi þess – sér­stak­lega í lýð­ræð­is­legu til­liti – að hér á landi fari fram opin og hrein­skiptin umræða um stöðu sam­fé­lags­ins í COVID-far­aldr­inum og hvernig Íslend­ingar tækjust á við hann.

Auglýsing

„Þurfum að þora að taka þessa umræðu“

„Þá þurfum við að þora að taka umræð­una frá mörgum sjón­ar­horn­um, sem mér finnst hafa, eftir bráðum tveggja ára veru í far­aldr­in­um, ein­skorð­ast svo­lítið bara við sótt­varna­sjón­ar­mið. Maður finnur það bara almennt í sam­fé­lag­inu að það er svo­lítið verið að stíga inn á hættu­lega braut með því að fara að gagn­rýna eitt­hvað, að spyrja spurn­inga. En við verð­um, við verðum bara að taka þessa umræð­u,“ sagði Vil­hjálm­ur.

Þá beindi hann jafn­framt máli sínu að eft­ir­köstum tak­mark­ana stjórn­valda í far­aldr­in­um. „Af því að umræðan snýst svo­lítið mikið um atvinnu­rek­endur og hvernig við eigum að halda atvinnu­líf­inu gang­andi – jú, til að fólk haldi stör­f­un­um? Það er nefni­lega mál­ið. Það er tölu­vert af fólki sem er þá kannski frekar á lágum launum sem hefur fallið úr starfi og þarf virkni­stuðn­ing til að kom­ast aftur til starfa en hefur kannski bara verið með 70 til 80 pró­sent laun síð­ustu tvö árin og hafði þó ekki miklar tekjur fyr­ir.“

Spurði Vil­hjálmur hvaða félags­leg og and­leg áhrif þetta hefði og hvernig stjórn­völd ætl­uðu að takast á við ástand­ið.

„Og líka bara spurn­ingar eins og læknar eru byrj­aðir að spyrja núna: Er betra að nýta starfs­fólkið í að þjón­usta í heil­brigð­is­kerf­inu eða að taka sýni og annað slíkt? Er betra að nota fjár­mun­ina í að byggja upp heil­brigð­is­kerf­ið, í geð­heil­brigð­is­mál­um, annað en að nota þá í þessar víð­tæku skiman­ir? Við þurfum að þora að taka þessa umræðu, fjöl­miðl­ar, alþing­is­menn og sam­fé­lagið allt,“ sagði hann að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent