Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, mun fylgja Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann félagsins, út úr því. Hann hyggst afhenda uppsagnarbréf síðar í dag. Þetta staðfestir Viðar í samtali við Kjarnann.
Viðar var ráðinn í þá nýtt starf framkvæmdastjóra Eflingar í maí 2018, í kjölfar þess að Sólveig Anna var kjörin formaður stéttarfélagsins, sem er það næst fjölmennasta á landinu. Hann hefur alla tíð unnið náið og í takti með formanninum.
Sólveig Anna greindi frá því í stöðuuppfærslu á Facebook í gær að hún hefði tilkynnt stjórn Eflingar um afsögn sína.
Ástæðan fyrir afsögn hennar er texti sem trúnaðarmenn starfsfólks skrifstofu Eflingar samþykktu þann 9. júní og sendu þá á hana og aðra stjórnendur. Á fimmtudag í síðustu viku hafði fréttamaður RÚV samband við Sólveigu vegna þessa texta, þar sem hún er meðal annars sökuð um að halda „aftökulista“ og að fremja grafalvarleg kjarasamningsbrot gegn starfsfólki á borð við fyrirvaralausar uppsagnir. Textinn er undirritaður af trúnaðarmönnum og sagður settur fram fyrir hönd starfsmanna.
Niðurstaða fundar starfsfólksins var ályktun sem send var til stjórnenda og önnur ályktun til RÚV. „Í þessum ályktunum kemur fram afdráttarlaus staðfesting á þeim orðum sem var að finna í ályktun trúnaðarmanna frá í júní. Talað er á þeim nótum að alvarleg vandamál séu viðvarandi sem þurfi að leysa með fundahöldum og öðru. Krafist er aukins valds fyrir trúnaðarmenn vinnustaðarins og tíðari vinnustaðafunda, þar sem möguleg vanlíðan einstakra starfsmenna verði fundarefni. Í yfirlýsingu til RÚV er jafnframt engin tilraun gerð til að bera til baka ásakanir um ógnarstjórn. Ályktanirnar eru vantraustsyfirlýsing til mín og til allra þeirra sem bera ábyrgð á starfsmannamálum vinnustaðarins.“
Sólveig Anna segir í stöðuuppfærslunni að hún kjósi að hlíta þeirri afdráttarlausu vantraustsyfirlýsingu sem starfsfólk Eflingar hafi sent henni, félaginu og fjölmiðlum, sem geri starf hennar ómögulegt. „Ég get ekki gegnt stöðu formanns í félaginu að svo komnu máli og hef ég tilkynnt stjórn Eflingar um afsögn mína. Mér þykir það ótrúlegt að það sé starfsfólk Eflingar sem í reynd hrekur mig úr starfi, með því að leyfa andstæðingum félagsins að hossa sér á ýkjum, lygum og rangfærslum um mig og samverkafólk mitt. Starfsfólk Eflingar hefur kosið að svipta mig því vopni sem hefur gert mér mögulegt að leiða sögulega og árangursríka baráttu verka- og láglaunafólks síðustu ár, mannorði mínu og trúverðugleika.“
Hægt er að lesa stöðuuppfærsluna í heild sinni hér að neðan:
Á fimmtudaginn var haft samband við mig frá fréttamanni á RÚV. Hann vildi spyrja mig um texta sem að trúnaðarmenn...
Posted by Sólveig Anna Jónsdóttir on Sunday, October 31, 2021