Sólveig Anna hætt sem formaður Eflingar - Segir starfsfólk hafa hrakið sig úr starfi

Formaður Eflingar hefur tilkynnt stjórn stéttarfélagsins um afsögn sína. Ástæðan er texti sem trúnaðarmenn starfsfólks skrifstofu Eflingar samþykktu í sumar þar sem hún er meðal annars ásökuð um að halda „aftökulista“ og fremja kjarasamningsbrot.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jónsdóttir.
Auglýsing

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ingar stétt­ar­fé­lags, hefur til­kynnt stjórn Efl­ingar um afsögn sína. Þetta til­kynnti hún í stöðu­upp­færslu á Face­book í kvöld. Hún var fyrst kjörin for­maður Efl­ingar í mars 2018 og end­ur­kjörin án mót­fram­boðs tveimur árum síð­ar.

Ástæðan fyrir afsögn hennar er texti sem trún­að­ar­menn starfs­fólks skrif­stofu Efl­ingar sam­þykktu þann 9. júní og sendu þá á hana og aðra stjórn­end­ur. Á fimmtu­dag í síð­ustu viku hafði frétta­maður RÚV sam­band við Sól­veigu vegna þessa texta, þar sem hún er meðal ann­ars sökuð um að halda „af­töku­lista“ og að fremja grafal­var­leg kjara­samn­ings­brot gegn starfs­fólki á borð við fyr­ir­vara­lausar upp­sagn­ir. Text­inn er und­ir­rit­aður af trún­að­ar­mönnum og sagður settur fram fyrir hönd starfs­manna.

Eftir að hafa fengið póst frá frétta­manni ákvað Sól­veig Anna að ávarpa starfs­fólk Efl­ingar í upp­hafi vinnu­dags á föstu­dag­inn síð­asta, en búið var að ákveða starfs­manna­fund á þeim tíma. „Ég sagði við starfs­fólk á þessum fundi að það væru tveir kostir í stöð­unni. Annað hvort kæmi eitt­hvað skrif­legt frá þeim sem myndi bera til baka ofstæk­is­fullar lýs­ingar úr ályktun trún­að­ar­manna og orð sem frétta­maður not­aði um „ógn­ar­stjórn“, eða að ég myndi segja af mér for­mennsku í félag­in­u.“

Auglýsing
Niðurstaða fundar starfs­fólks­ins var ályktun sem send var til stjórn­enda og önnur ályktun til RÚV. „Í þessum álykt­unum kemur fram afdrátt­ar­laus stað­fest­ing á þeim orðum sem var að finna í ályktun trún­að­ar­manna frá í júní. Talað er á þeim nótum að alvar­leg vanda­mál séu við­var­andi sem þurfi að leysa með funda­höldum og öðru. Kraf­ist er auk­ins valds fyrir trún­að­ar­menn vinnu­stað­ar­ins og tíð­ari vinnu­staða­funda, þar sem mögu­leg van­líðan ein­stakra starfs­menna verði fund­ar­efni. Í yfir­lýs­ingu til RÚV er jafn­framt engin til­raun gerð til að bera til baka ásak­anir um ógn­ar­stjórn. Álykt­an­irnar eru van­trausts­yf­ir­lýs­ing til mín og til allra þeirra sem bera ábyrgð á starfs­manna­málum vinnu­stað­ar­ins.“

Sól­veig Anna segir í stöðu­upp­færsl­unni að hún kjósi að hlíta þeirri afdrátt­ar­lausu van­trausts­yf­ir­lýs­ingu sem starfs­fólk Efl­ingar hafi sent henni, félag­inu og fjöl­miðl­um, sem geri starf hennar ómögu­legt. „Ég get ekki gegnt stöðu for­manns í félag­inu að svo komnu máli og hef ég til­kynnt stjórn Efl­ingar um afsögn mína. Mér þykir það ótrú­legt að það sé starfs­fólk Efl­ingar sem í reynd hrekur mig úr starfi, með því að leyfa and­stæð­ingum félags­ins að hossa sér á ýkj­um, lygum og rang­færslum um mig og sam­verka­fólk mitt. Starfs­fólk Efl­ingar hefur kosið að svipta mig því vopni sem hefur gert mér mögu­legt að leiða sögu­lega og árang­urs­ríka bar­áttu verka- og lág­launa­fólks síð­ustu ár, mann­orði mínu og trú­verð­ug­leika.“

Hægt er að lesa stöðu­upp­færsl­una í heild sinni hér að neð­an:

Á fimmtu­dag­inn var haft sam­band við mig frá frétta­manni á RÚV. Hann vildi spyrja mig um texta sem að trún­að­ar­menn...

Posted by Sól­veig Anna Jóns­dóttir on Sunday, Oct­o­ber 31, 2021

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent