Viðreisnarfólki í Reykjavík fjölgaði um 6-700 í aðdraganda prófkjörs

Alls verða um 1.900 manns á kjörskránni í fyrsta prófkjöri Viðreisnar, sem hefst á morgun. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Þórdís Jóna Sigurðardóttir bítast um efsta sætið á lista flokksins í Reykjavík.

Viðreisnarfólki í Reykjavík hefur fjölgað um 6-700 manns síðan ákveðið var að halda prófkjör fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, samkvæmt upplýsingum frá flokknum.
Viðreisnarfólki í Reykjavík hefur fjölgað um 6-700 manns síðan ákveðið var að halda prófkjör fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, samkvæmt upplýsingum frá flokknum.
Auglýsing

Alls verða í kringum 1.900 manns á kjör­skrá Við­reisnar í fyrsta próf­kjöri flokks­ins sem fram fer í Reykja­vík á morgun og á laug­ar­dag. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Við­reisn hefur flokks­fé­lögum í Reykja­vík einni og sér fjölgað um 600-700 manns í aðdrag­anda próf­kjörs­ins.

Sjö manns bjóða fram krafta sína í próf­­kjör­in, en í því verður kosið um fjögur efstu sætin á lista flokks­ins. Tvær vilja fyrsta sætið á lista, þær Þór­­dís Lóa Þór­halls­dóttir núver­andi odd­viti borg­­ar­­stjórn­­­ar­­flokks­ins og Þór­­dís Jóna Sig­­urð­­ar­dótt­­ir. Pawel Bar­toszek borg­­ar­­full­­trúi er einn um að gefa kost á sér í annað sæti á list­an­um, en fleiri eru um hit­una hvað þriðja sætið á lista varð­­ar.

Allir félags­­­menn Við­reisnar 16 ára og eldri, sem búsettir eru í Reykja­vík og hafa verið félags­­­menn í a.m.k. þrjá daga fyrir próf­­kjör hafa kosn­­inga­rétt í próf­kjör­inu, en frestur til þess að skrá sig í flokk­inn til þess að öðl­ast þátt­töku­rétt í próf­kjör­inu rann út í lok dags 1. mars.

Þær Þórdís Jóna og Þórdís Lóa svara spurningum á streymisfundi sem flokkurinn stendur fyrir í kvöld. Mynd: Viðreisn.

Sam­kvæmt svari frá Við­reisn fjölgar víðar í flokknum en í Reykja­vík þrátt fyrir að þar fari eina próf­kjör flokks­ins fram. Í Mos­fellsbæ fer til dæmis fram óbind­andi skoð­ana­könnun á meðal félaga um skipan á lista flokks­ins í bæn­um, en þar sækj­ast þau Lovísa Jóns­dóttir og Valdi­mar Birg­is­son eftir því að leiða lista flokks­ins.

„Það er virki­lega gaman að sjá þennan mikla áhuga á fyrsta próf­kjöri Við­reisn­ar, flokks sem verður 6 ára nú í maí og und­ir­býr sig nú fyrir sínar fimmtu kosn­ing­ar,” segir Jenný Guð­rún Jóns­dóttir fram­kvæmda­stjóri flokks­ins í skrif­legu svari til Kjarn­ans.

Undir kjör­fylgi í Reykja­vík í síð­ustu könnun

Við­reisn bauð fyrst fram til sveit­­ar­­stjórna árið 2018 og fékk þá 8,2 pró­­sent atkvæða í Reykja­vík­­­ur­­borg og tvo borg­­ar­­full­­trúa kjörna. Í kjöl­farið mynd­aði flokk­­ur­inn meiri­hluta ásamt Sam­­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri græn­­um.

Auglýsing

Sam­­kvæmt nýj­­ustu könn­un­inni um fylgi flokka í Reykja­vík, sem Mask­ína fram­­kvæmdi í lok jan­úar og byrjun febr­­ú­­ar, mæld­ist Við­reisn ögn undir kjör­­fylgi sínu og var eini flokk­­ur­inn núver­andi meiri­hluta sem það gerði.

Flokk­­ur­inn mæld­ist nánar til tekið með 5,9 pró­­senta fylgi í könnun Mask­ínu, sem myndi þýða að hann fengi ein­ungis einn borg­­ar­­full­­trúa kjör­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent