Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við ESB fyrir lok árs

Samfylkingin, Viðreisn og Píratar hafa sameinast um þingsályktunartillögu þess efnis að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu fari fram fyrir árslok 2022.

Þingsályktunartillaga af sama meiði var lögð fram fyrir sjö árum síðan af Samfylkingu, Vinstri grænum, Bjartri framtíð og Pírötum.
Þingsályktunartillaga af sama meiði var lögð fram fyrir sjö árum síðan af Samfylkingu, Vinstri grænum, Bjartri framtíð og Pírötum.
Auglýsing

Þing­menn Sam­fylk­ing­ar, Við­reisnar og Pírata munu í dag leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að á þessu ári fari fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um hvort halda skuli áfram aðild­ar­við­ræðum Íslands við Evr­ópu­sam­band­ið.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er lagt til að spurn­ingin sem lögð verði fyrir þjóð­ina verði eft­ir­far­andi, með svar­mögu­leik­unum já eða nei: „Vilt þú að Ísland taki upp þráð­inn í við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið með það að mark­miði að gera aðild­ar­samn­ing sem bor­inn yrði undir þjóð­ina til sam­þykktar eða synj­un­ar?“

Fram kemur í grein­ar­gerð til­lög­unnar að þings­á­lykt­un­ar­til­laga af nákvæm­lega sama meiði hafi verið lögð fram á 144. lög­gjaf­ar­þingi af þeim Árna Páli Árna­syni, Katrínu Jak­obs­dótt­ur, Guð­mundi Stein­gríms­syni og Birgittu Jóns­dótt­ur.

Katrín Jak­obs­dótt­ir, þá leið­togi Vinstri grænna í stjórn­ar­and­stöðu en nú for­sæt­is­ráð­herra, mælti fyrir til­lög­unni er hún var borin fram í mars árið 2015.

Ályktun Alþingis frá 2009 sé enn í fullu gildi

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni, sem dreift er á Alþingi í dag, er vísað til þess að í júlí árið 2009 hafi Alþingi ályktað að fela rík­is­stjórn­inni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu og að loknum við­ræðum við sam­bandið yrði haldin þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um vænt­an­legan aðild­ar­samn­ing.

„Sú þings­á­lyktun er enn í fullu gildi enda hefur hún ekki verið felld úr gildi með annarri ályktun Alþing­is,“ segir í grein­ar­gerð­inni og því er bætt við að til­gangur til­lög­unnar sé að fylgja eftir þeim vilja Alþingi sem end­ur­speglist í þings­á­lykt­un­inni frá árinu 2009.

Auglýsing

„Þegar rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins lagði fram til­lögu til þings­á­lykt­unar um að draga aðild­ar­um­sókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu til baka í febr­úar 2014 vakti það hörð við­brögð almenn­ings. Alls skrif­uðu 53.555 undir áskorun um að efnt yrði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræð­urn­ar. Þáver­andi rík­is­stjórn brást ekki við kröfu meira en fimmt­ungs kosn­ing­ar­bærra manna,“ segir einnig í grein­ar­gerð­inni.

Fram kemur að það sé „sam­eig­in­leg nið­ur­staða flutn­ings­manna að þetta mál sé af slíkri stærð­argráðu að eðli­legt sé að leita leið­sagnar þjóð­ar­innar um fram­hald þess“ og að auk þeirra „mik­il­vægu rök­semda er lúta að efna­hags­legum stöð­ug­leika og fjöl­mörgu öðru, hníga einnig sterk rök að því að Ísland taki afstöðu til aðildar að Evr­ópu­sam­band­inu vegna nýs veru­leika í varn­ar- og örygg­is­málum og hlut­verks Evr­ópu­sam­bands­ins í þeim efn­um.“

Þau Logi Ein­ars­son, Þor­gerður K. Gunn­ars­dótt­ir, Hall­dóra Mog­en­sen, Helga Vala Helga­dótt­ir, Dag­bjartur Gunnar Lúð­víks­son, Andrés Ingi Jóns­son, Jóhann Páll Jóhanns­son, Guð­brandur Ein­ars­son, Arn­dís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dótt­ir, Kristrún Frosta­dótt­ir, Sig­mar Guð­munds­son, Björn Leví Gunn­ars­son, Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, Eva Sjöfn Helga­dótt­ir, Viktor Stefán Páls­son og Gísli Rafn Ólafs­son eru flutn­ings­menn til­lög­unnar í þing­inu nú, sam­kvæmt drögum að til­lög­unni sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent