Þingmaður Flokks fólksins, Tómas A. Tómasson, greindi frá því undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag að ekki alls fyrir löngu hefði hann hitt konu sem var nýkomin úr skíðaferð til Ítalíu.
„Hún var að lýsa fyrir mér ferðinni, hvað hún hefði verið dásamleg í alla staði en það sem hún hefði þurft að hafa með sér af vottorðum. Það var meðal annars bólusetningarvottorð, heilbrigðisvottorð og svo tryggingavottorð,“ sagði Tómas og spurði konuna hvort um tryggingavottorð hefði verið að ræða.
„Já, ef skíðamaður skíðar á annan mann í brekkunum þá er hann skaðabótaskyldur. Þá fór ég að hugsa: Við erum með dásamlegar flugbjörgunarsveitir út um allt land, fólk sem er í sjálfboðavinnu, og við erum með landhelgisgæslu sem er með þyrlur. Fari einhver maður upp á fjöll og lendi í ógöngum eru kannski 50, 60 eða 70 einstaklingar komnir með dýran útbúnað og það kostar tugi milljóna að hjálpa fólki sem fer oft og tíðum í hálfgerðum óvitaskap upp á fjöll,“ sagði hann.
Forseti Alþingis einnig upptekinn af því hvað klukkan er
Lagði Tómas í framhaldinu til að hugsað yrði alvarlega um það að fólk sem hingað kemur – ferðamenn sem ætla að fara upp á fjöll og njóta náttúrunnar – þyrfti að bera ábyrgð á því sem það gerði. Þetta væri kostnaðarsamt.
„Ég legg til í leiðinni að allar björgunarsveitir fái einkasöluleyfi fyrir flugeldum um áramót. Það er út í hött að leyfa venjulegu fólki að flytja inn flugelda og taka aðaltekjulindirnar frá íþróttafélögum og björgunarsveitum.
Að lokum er hérna þessi dásamlega mynd af Jóni Sigurðssyni forseta, sem er ágæt. Ég legg til að þarna á móti komi hugguleg klukka sem við getum horft á því að maður vill alltaf vita hvað klukkan er,“ sagði hann að lokum.
Birgir Ármannsson forseti Alþingis sagðist einnig vera upptekinn af því hvað klukkan væri en þingmaðurinn fór aðeins fram yfir ræðutímann. „Forseti minnir þingmenn á að virða ræðutímann, sem er tvær mínútur í störfum þingsins.“