Vill að ferðamenn beri meiri ábyrgð og að björgunarsveitir fái einkasöluleyfi fyrir flugeldum

Tómas A. Tómasson, eða Tommi eins og hann er alltaf kallaður, lagði ýmislegt til í ræðu sinni á Alþingi í dag. Hann vill meðal annars huggulega klukku í þingsalinn.

Tómas A. Tómasson þingmaður Flokks fólksins.
Tómas A. Tómasson þingmaður Flokks fólksins.
Auglýsing

Þing­maður Flokks fólks­ins, Tómas A. Tóm­as­son, greindi frá því undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag að ekki alls fyrir löngu hefði hann hitt konu sem var nýkomin úr skíða­ferð til Ítal­íu.

„Hún var að lýsa fyrir mér ferð­inni, hvað hún hefði verið dásam­leg í alla staði en það sem hún hefði þurft að hafa með sér af vott­orð­um. Það var meðal ann­ars bólu­setn­ing­ar­vott­orð, heil­brigð­is­vott­orð og svo trygg­inga­vott­orð,“ sagði Tómas og spurði kon­una hvort um trygg­inga­vott­orð hefði verið að ræða.

„Já, ef skíða­maður skíðar á annan mann í brekk­unum þá er hann skaða­bóta­skyld­ur. Þá fór ég að hugsa: Við erum með dásam­legar flug­björg­un­ar­sveitir út um allt land, fólk sem er í sjálf­boða­vinnu, og við erum með land­helg­is­gæslu sem er með þyrl­ur. Fari ein­hver maður upp á fjöll og lendi í ógöngum eru kannski 50, 60 eða 70 ein­stak­lingar komnir með dýran útbúnað og það kostar tugi millj­óna að hjálpa fólki sem fer oft og tíðum í hálf­gerðum óvita­skap upp á fjöll,“ sagði hann.

Auglýsing

For­seti Alþingis einnig upp­tek­inn af því hvað klukkan er

Lagði Tómas í fram­hald­inu til að hugsað yrði alvar­lega um það að fólk sem hingað kemur – ferða­menn sem ætla að fara upp á fjöll og njóta nátt­úr­unnar – þyrfti að bera ábyrgð á því sem það gerði. Þetta væri kostn­að­ar­samt.

„Ég legg til í leið­inni að allar björg­un­ar­sveitir fái einka­sölu­leyfi fyrir flug­eldum um ára­mót. Það er út í hött að leyfa venju­legu fólki að flytja inn flug­elda og taka aðal­tekju­lind­irnar frá íþrótta­fé­lögum og björg­un­ar­sveit­um.

Að lokum er hérna þessi dásam­lega mynd af Jóni Sig­urðs­syni for­seta, sem er ágæt. Ég legg til að þarna á móti komi huggu­leg klukka sem við getum horft á því að maður vill alltaf vita hvað klukkan er,“ sagði hann að lok­um.

Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis sagð­ist einnig vera upp­tek­inn af því hvað klukkan væri en þing­mað­ur­inn fór aðeins fram yfir ræðu­tím­ann. „For­seti minnir þing­menn á að virða ræðu­tím­ann, sem er tvær mín­útur í störfum þings­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent