Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að leggja fram frumvarp þar sem heimildir til að nota íslenska þjóðfánann við markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu eru rýmkaðar mjög. Samkvæmt frumvarpinu verða reglur einfaldaðar og verði það að lögum þarf ekki lengur að sækja um leyfi til að nota þjóðfánann við markaðssetningu á vörum og þjónustu sem er íslensk að uppruna. Þetta kemur fram í frétt á vef forsætisráðuneytisins. Neytendastofa mun fá það hlutverk að veita leyfi fyrir notkun þjóðfánans í vörumerki. Notkun í firmamerki fyrirtækja verður hins vegar alfarið óheimil.
Til að vara teljist íslensk að uppruna þarf hún að vera framleidd á Íslandi og úr innlendu hráefni að uppistöðu til, svo sem íslenskum landbúnaðar- og sjávarafurðum, eldisfiski, íslensku grænmeti og öðrum jurtum sem ræktaðar eru hér á landi, íslensku vatni o.s.frv.
Í fréttinni segir einnig: "Að auki er lagt til að vara sem framleidd hafi verið á Íslandi í a.m.k. 30 ára undir íslensku vörumerki teljist íslensk, jafnvel þótt hráefnið sé innflutt og það sama gildi um um matvöru sem er framleidd samkvæmt íslenskri hefð, t.d. kleinur, laufabrauð o.fl. Þá er lagt til að hönnunarvara teljist íslensk ef hún er hönnuð af íslenskum aðila undir íslensku vörumerki, jafnvel þótt hún sé framleidd erlendis úr erlendu hráefni. Loks er kveðið á um að hugverk teljist íslenskt að uppruna ef það er samið af íslenskum aðila".